„Kona fer í stríð“ og „Vetrarbræður“ tilnefndar til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs

Kona fer í stríð eftir Benedikt Erlingsson og Vetrarbræður eftir Hlyn Pálmason eru tilnefndar til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs fyrir hönd Íslands og Danmerkur. Tilnefningar voru kynntar í dag.

Vetrarbræður (Vinterbrødre) er framleidd af Julie Waltersdorph Hansen, Per Damgaard Hansen og Anton Mána Svanssyni. Hlynur skrifar einnig handrit.

Handritið að Kona fer í stríð er eftir Benedikt og Ólaf Egil Egilsson. Framleiðendur eru Benedikt, Marianne Slot and Carine Leblanc.

Verðlaunin verða afhent þann 30. október næstkomandi í Osló.

Frekari upplýsingar eru hér.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR