![Mads Mikkelsen í íslensku umhverfi í Rogue One.](https://i0.wp.com/klapptre.is/wp-content/uploads/2016/10/rogue-one-trailer-still-mads-mikkelsen.jpg?resize=696%2C292&ssl=1)
Íslenskt landslag er áberandi í nýrri stiklu kvikmyndarinnar Rogue One: A Star Wars Story. Myndin verður frumsýnd í desember.
Í upphafi stiklunnar sést hvar danski leikarinn Mads Mikkelsen fær heimsókn og bendir umhverfið til þess að svartir sandar Suðurlands sem og nágrenni Víkur í Mýrdal komi við sögu.
Tökulið myndarinnar var hér við störf í fyrrahaust og var True North þjónustuaðilinn hér á landi.