Greining | „Vonarstræti“ komin í um 38 þúsund manns

vonarstræti collageVonarstræti er áfram í 3. sæti aðsóknarlista SMÁÍS eftir 6 vikur í sýningum. Alls hafa 37.584 séð myndina en alls sáu hana 2.036
manns síðastliðna viku, þar af 773 um helgina.

Harry og Heimir: Morð eru til alls fyrst er nú sýnd í Bíó Paradís og hefur verið ellefu vikur í sýningum. Hross í oss er einnig áfram í Bíó Paradís og er á 43. sýningarviku. Staðfestar heildartölur liggja ekki fyrir en gera má ráð fyrir að sú fyrrnefnda sé komin með ríflega tólf þúsund gesti og sú síðarnefnda með um fimmtán þúsund gesti.

[tble caption=“Aðsókn á íslenskar myndir vikuna 16.-22. júní 2014″ width=“500″ colwidth=“20|100|50|50″ colalign=“center|centre|center|center“] VIKUR,MYND,AÐSÓKN,HEILDARAÐSÓKN
6,Vonarstræti,2.036,37.584
[/tble](Heimild: SMÁÍS)

 

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR