SkjárEinn opinn frá deginum í dag

Pálmi Guðmundsson sjónvarpsstjóri SkjásEins.

Sjónvarpsstöðin SkjárEinn er í opinni línulegri dagskrá frá og með deginum í dag. Stöðin verður hins vegar í áskrift sem gagnvirk efnisveita. Með þessu ætlar Síminn að herja á nútímasjónvarpsmarkað.

Kjarninn greinir frá:

„Fyrirmyndin er fengin úr tónlistar- og leikjaheiminum á netinu. Við erum algjörlega sannfærð um að það reynist vel á sjónvarpsmarkaði og finnum fyrir miklum áhuga,“ segir Pálmi Guðmundsson sjónvarpsstjóri í tilkynningu um breytingarnar. Uppskiptingin með þessum hætti er byggð á íslensku hugviti og var þróuð hjá Símanum.

SkjárEinn fór í loftið árið 1999 og var í opinni dagskrá allt til ársins 2009, eða í tíu ár. Frá þeim tíma hefur stöðin, og tengdar stöðvar Skjásins, verið áskriftarstöðvar, þangað til í dag. Tilkynnt var um þessar breytingar um miðjan september, en miklar breytingar hafa átt sér stað hjá SkjáEinum á árinu, en sjónvarpsstöðin og annað sem heyrði undir Skjáinn er nú rekið beint undir hatti Símans.

Sjá hér: SkjárEinn opinn frá deginum í dag | Kjarninn

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR