„Albatross“ frumsýnd 19. júní

ALBATROSS kvikmynd   Karolina FundGamanmyndin Albatross verður frumsýnd þann 19. júní. Myndin var tekin upp í Bolungarvík sumarið 2013. Leikstjóri og handritshöfundur er Snævar S. Sölvason en þetta er hans fyrsta mynd í fullri lengd.

Myndin var forsýnd á dögunum í Bolungarvík og var henni mjög vel tekið þar á bæ.

Sögunni er þannig lýst:

Tómas er ungur og ástfanginn maður sem ákveður að leggja framtíðarplönin á hilluna til að elta kærustu sína vestur á firði þar sem hann ræður sig í sumarvinnu hjá Golfklúbbi Bolungarvíkur. Ekki beint það sem hann hafði hugsað sér eftir háskólanám en ástin spyr hvorki um stað né stund. Á golfvellinum í Bolungarvík kynnist hann ansi skrautlegum samstarfsmönnum og virkilega metnaðarfullum yfirmanni sem þráir ekkert heitara en að fá stórmót á golfvöllinn í Bolungarvík og líst Tómasi ekki beint á blikuna. Allt gerir hann þetta þó fyrir hina einu sönnu en svo dynja áföllin yfir.

Hlutverk Tómasar er í höndum Ævars Arnar Jóhannssonar en með önnur helstu hlutverk myndarinnar fara Finnbogi Dagur Sigurðsson, Gunnar Kristinsson, og Birna Hjaltalín Pálmadóttir. Faðir hennar, Pálmi Gestsson, fer með hlutverk hins ofur metnaðarfulla yfirmanns Tómasar, Kjartans hins alíslenska smákóngs, sem hatar ekkert meira en Ísfirðinga og þá sérstaklega formann Golklúbbs Ísafjarðar, Þránd, sem leikinn er af Guðmundi Magnúsi Kristjánssyni (Papamug).

Guðgeir Arngrímsson framleiðir fyrir hönd Flugbeitts kuta en Ingvar Þórðarson og Júlíus Kemp hjá Kvikmyndafélagi Íslands eru meðframleiðendur. Myndin var að hluta fjármögnuð hjá hópfjármögunarsíðunni Karolina Fund og er fyrsta íslenska bíómyndin sem nær þar að landi.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR