Sjö íslenskar stutt- og heimildamyndir á Reykjavík Shorts & Docs hátíðinni

icelandauroraHeimskautarefurinn, norðurljósin, minnismiðar og sund eru meðal viðfangsefna þeirra sex íslensku stutt- og heimildamynda sem sýndar verða á Reykjavík Shorts & Docs hátíðinni 9.-12. apríl í Bíó Paradís.

Íslensku stutt- og heimildamyndir Reykjavík Shorts & Docs í ár eru;

Heimskautarefurinn, leikstj. Guðbergur Davíðsson (2015).

Ár í lífi refsins er viðfangsefni myndarinnar Heimskautarefurinn í leikstjórn Guðbergs Davíssonar sem verður frumsýnd á hátíðinni. Myndin gefur áhorfandanum innsýn í erfiða lífsbaráttu heimskautarefs allt frá fæðingu og þar til hann verður fullorðinn og fer að eignast yrðlinga sjálfur. Þetta er einstök náttúrulífsmynd sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.

Iceland Aurora, leikstj. Arnþór Tryggvason, Snorra Þór Tryggvason og Pétur K. Guðmundsson (2014).
Stutta heimildamyndin Iceland Aurora sýnir norðurljósin í allri sinni dýrð. Kvikmyndagerðar-mennirnir Arnþór Tryggvason, Snorra Þór Tryggvason og Pétur K. Guðmundsson vörðu þremur árum í að mynda norðurljósin á um 50 stöðum víðsvegar um landið. Myndin er án texta og sögumanns, en orða þarf vart við þegar norðurljósin eiga í hlut.

Smástirni, leikstjórar Lovísa Lára og Margrét Buhl (2014)
Dóra er unglingsstúlka á fermingaraldri. Foreldrar hennar eru breyttir á að ná engu sambandi við hana. Hún er að missa stjórn á líkama sínum sem er að taka breytingum. Hún fjarlægist vini sína og byrjar að haga sér furðulega. Er þetta gelgjuskeiðið eða er eitthvað mikið alvarlegra að hrjá hana.

Minnismiðar, leikstj. Eyþór Jónvinsson, (2015)
Nýr og framandi hlutur gleymist í vernduðu umhverfi hjá minnislausum manni, sem setur daglegt líf hans úr skorðum.  Mínútumyndin, Minnismiðar, er fyrsta skólaverkefni Eyþórs Jóvinssonar úr Kvikmyndaskóla Íslands. Eyþór fékk 2.verðlaun fyrir bestu stuttmyndina að mati áhorfenda, fyrir mynd sína Sker á Reykjavík Shorts & Docs 2014.

Potturinn, leikstj. Georg Erlingsson Merritt (2015)
Kannast þú ekki við að fara í heitu pottana og rekast á mann sem þykist vita allt? Gunnar er þannig maður og óhræddur að segja sýnar skoðanir. Gunnar fer daglega í heitu pottana í leit að félagsskap en á það til að hreita í fólk og vera of ýtinn með sínar skoðanir. Dag einn breytist rútínan og hans daglega form fer úr jafnvægi.

Synda, leikstj. Hilke Rönnfeldt (2014)
Anna mætir á síðustu vaktina sína í almenningssundlaug. Undarleg samskipti við sundmann trufla rútínuna hjá henni. Vaktinni hennar lýkur, en hugsanirnar láta hana ekki í friði. Hver stjórnar í lífi hennar? Atburðir dagsins fá hana til að endurmeta hvaða brautir hún vill feta í lífinu.

Myndirnar verða sýndar saman kl. 20 föstudaginn 10.apríl í Bíó Paradís. Auk þessarra íslensku mynda verður heimildamyndin Bannað að vera fáviti (No Idiots Allowed) frumsýnd á hátíðinni en hún er opnunarmynd Reykjavík Shorts & Docs í ár. Einu sinni á ári fyllist, hinn annars rólegi bær, Neskaupstaður af þungarokkurum sem mæta á Eistnaflug, einu hreinræktuðu þungarokkshátíð landsins. Þó að hátíðin, sem nú er haldin í tíunda sinn, sé lítil á alþjóðlega vísu hafa margar af stæstu þungarokkssveitum heims spilað fyrir gesti hátíðarinnar. Bannað að vera fáviti verður sýnd fimmtudaginn 9.apríl kl. 20 í Bíó Paradís. Leikstjóri myndarinnar, Hallur Örn Árnason, mun svara spurningum áhorfenda að lokinni sýningu myndarinnar.

Upplýsingar um allar myndir hátíðarinnar og sýningartíma má finna á shortsdocsfest.com. Miðasala á myndir hátíðarinnar fer fram í Bíó Paradís.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR