Samkvæmt bráðabirgðatölum frá RÚV var meðaláhorf á lokaþátt Fanga um 50%. RÚV gerir ráð fyrir að heildaráhorf verði í kringum 60% þegar hliðrað áhorf (Frelsi og Sarpur) liggur fyrir. Þættirnir eru aðgengilegir á Sarpinum til og með 7. mars næstkomandi.
Samkvæmt áhorfsmælingum Gallup var meðaláhorf á fyrsta þátt Fanga, sem sýndur var þann 1. janúar, 48,7%. Hærra meðaláhorf var á annan þátt en hliðrað áhorf liggur ekki fyrir.
Í frétt Klapptrés sem birtist þann 28. desember s.l. var fjallað um áhorf á fyrsta þátt Ófærðar. Í fréttinni var þess getið að fyrsti þáttur Ófærðar hefði fengið svipað áhorf og þættirnir Hraunið nutu á sömu sjónvarpsstöð. Þetta er rangt, komið hefur í ljós að sambærilegir hlutir voru ekki bornir saman. Lesendur og hlutaðeigandi eru beðnir afsökunar á mistökunum og leiðréttast þau hér með.
Þáttaröðin Ófærð, sem í gær hlaut þrenn Edduverðlaun, meðal annars sem leikið sjónvarpsefni ársins, er með mesta áhorf leikins sjónvarpsefnis síðan rafrænar mælingar hófust. Klapptré birtir sundurliðaðar áhorfstölur þáttanna.
Fyrstu fjórir þættirnir af Ófærð voru sýndir á France 2, frönsku ríkisstöðinni, í gærkvöldi. Þættirnir fengu meira áhorf en búist var við, en alls horfðu um fimm milljónir manna á þá.
Áhorf á Ófærð hefur verið í kringum 60% að meðaltali sem gerir þáttaröðina að einu vinsælasta sjónvarpsefninu síðan rafrænar mælingar hófust. Nú eru þrír þættir eftir.
Um 128 þúsund manns horfðu á fyrsta þátt Ófærðar í gærkvöldi samkvæmt bráðabirgðatölum frá Gallup. Meðaláhorf reyndist 49 prósent en uppsafnað áhorf 53 prósent.
Klapptré birtir nú fyrstur miðla tæmandi lista yfir áhorf á íslenskar bíómyndir, heimildamyndir , leikið sjónvarpsefni og stuttmyndir í sjónvarpi. Listinn nær yfir allt þetta efni sem birtist á íslensku sjónvarpsstöðvunum 2014.
Valgeir Vilhjálmsson, markaðsrannsóknastjóri hjá RÚV, hefur gert athugasemd við fréttaskýringu Kjarnans um minnkað sjónvarpsáhorf sem Klapptré sagði frá. Valgeir bendir á að sjónvarpsáhorf hafi alls ekki minnkað jafn mikið og fram kom í fréttaskýringu Kjarnans. Hann byggir þar á gögnum Capacent sem heldur utan um mælingar á fjölmiðlaneyslu hér á landi.