Á FERÐ MEÐ MÖMMU hlaut níu Edduverðlaun

Á ferð með mömmu eftir Hilmar Oddsson hlaut níu Edduverðlaun á afhendingunni sem fór fram í Gufunesi í gærkvöldi.

Á ferð með mömmu var valin kvikmynd ársins. Hilmar Oddsson var valin leikstjóri og handritshöfundur ársins. Þröstur Leó Gunnarsson var valin leikari ársins í aðalhlutverki og Kristbjörg Kjeld leikkona ársins í aðalhlutverki. Helga Rós V. Hannam hlaut Eddu fyrir búninga ársins og Kristín Júlla Kristjánsdóttir fyrir gervi ársins. Óttar Guðnason hlaut Edduverðlaun fyrir kvikmyndatöku ársins og Tönu Kõrvits fékk Edduna fyrir tónlist ársins.

Smoke Sauna Sisterhood, eistnesk/frönsk/íslensk samframleiðsla í leikstjórn Önnu Hints var valin heimildamynd ársins. Sætur eftir Önnu Karínu Lárusdóttur var valin stuttmynd ársins og einnig barna- og unglingamynd árins. Uppskrift: líf eftir dauðann eftir Bergþóru Ólöfu Björnsdóttur var valin stutta heimildamynd ársins. Anatomy of a Fall hlaut Edduna sem erlend kvikmynd ársins.

Sigurður Sverrir Pálsson kvikmyndatökustjóri hlaut heiðursverðlaun Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar fyrir einstakt áratuga framlag sitt til íslenskrar kvikmyndalistar.

Anna Karín Lárusdóttir, leikstjóri og handritshöfundur stuttmyndarinnar Sætur, var valin uppgötvun ársins.

Hér má skoða útsendingu RÚV frá Eddunni 2024.

Verðlaun og tilnefningar voru sem hér segir (verðlaun feitletruð):

BARNA- OG UNGLINGAMYND ÁRSINS
Konni
Sætur (Felt Cute)
Þið kannist við…

ERLEND KVIKMYND ÁRSINS
Anatomy of a Fall (Fallið er hátt)
Fallen Leaves
Killers of the Flower Moon
Oppenheimer
Past Lives

HEIMILDAMYND ÁRSINS
Heimaleikurinn
Skuld
Smoke Sauna Sisterhood

HEIMILDASTUTTMYND ÁRSINS
Konni
Super Soldier
Uppskrift: lífið eftir dauðann

KVIKMYND ÁRSINS
Á ferð með mömmu
Tilverur
Villibráð

STUTTMYND ÁRSINS
Dunhagi 11
Sorg etur hjarta
Sætur (Felt Cute)

BRELLUR ÁRSINS
Davíð Jón Ögmundsson, Dragos Vilcu, Árni Gestur Sigfússon & Rob Tasker fyrir Napóleonsskjölin
Jean-Michel Boublil, Jörundur Rafn Arnarson fyrir Northern Comfort
Atli Þór Einarsson fyrir Óráð

BÚNINGAR ÁRSINS
Helga Rós V. Hannam fyrir Á ferð með mömmu
Helga Rós V. Hannam fyrir Kulda
Arndís Ey fyrir Tilverur

GERVI ÁRSINS
Kristín Júlla Kristjánsdóttir fyrir Á ferð með mömmu
Kristín Júlla Kristjánsdóttir fyrir Kulda
Guðbjörg Huldís Kristinsdóttir fyrir Villibráð

HANDRIT ÁRSINS
Hilmar Oddsson fyrir Á ferð með mömmu
Erlingur Óttar Thoroddsen fyrir Kulda
Tyrfingur Tyrfingsson og Elsa María Jakobsdóttir fyrir Villibráð

HLJÓÐ ÁRSINS
Matis Rei fyrir Á ferð með mömmu
Björn Viktorsson fyrir Northern Comfort
Huldar Freyr Arnarson fyrir Smoke Sauna Sisterhood

KLIPPING ÁRSINS
Gunnar B. Guðbjörnsson og Kristján Loðmfjörð fyrir Napóleonsskjölin
Hendrik Mägar fyrir Smoke Sauna Sisterhood
Ivor Šonje fyrir Tilverur

KVIKMYNDATAKA ÁRSINS
Óttar Guðnason fyrir Á ferð með mömmu
Árni Filippusson fyrir Napóleonsskjölin
Ants Tammik fyrir Smoke Sauna Sisterhood

LEIKARI ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI
Þröstur Leó Gunnarsson fyrir Á ferð með mömmu
Þröstur Leó Gunnarsson fyrir Tilverur
Gísli Örn Garðarsson fyrir Villibráð

LEIKARI ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI
Ólafur Darri Ólafsson fyrir Napóleonsskjölin
Hilmir Snær Guðnason fyrir Villibráð
Björn Hlynur Haraldsson fyrir Villibráð

LEIKKONA ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI
Kristbjörg Kjeld fyrir Á ferð með mömmu
Elín Hall fyrir Kulda
Vivian Ólafsdóttir fyrir Napóleonsskjölin

LEIKKONA ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI
Halldóra Geirharðsdóttir fyrir Kulda
Selma Björnsdóttir fyrir Kulda
Nína Dögg Filippusdóttir fyrir Villibráð

LEIKMYND ÁRSINS
Heimir Sverrisson fyrir Napóleonsskjölin
Hulda Helgadóttir, Eggert Ketilsson fyrir Northern Comfort
Heimir Sverrisson fyrir Villibráð

LEIKSTJÓRI ÁRSINS
Hilmar Oddsson fyrir Á ferð með mömmu
Anna Hints fyrir Smoke Sauna Sisterhood
Elsa María Jakobsdóttir fyrir Villibráð

TÓNLIST ÁRSINS
Tönu Kõrvits fyrir Á ferð með mömmu
Daníel Bjarnason fyrir Northern Comfort
Eðvarð Egilsson fyrir Smoke Sauna Sisterhood

HEIÐURSVERÐLAUN
Sigurður Sverrir Pálsson kvikmyndatökustjóri fyrir einstakt framlag sitt til íslenskrar kvikmyndalistar.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR