Á FERÐ MEÐ MÖMMU áfram mest sótt, VILLIBRÁÐ að detta í 56 þúsund gesti

Á ferð með mömmu er sjöundu vikuna í röð með mesta aðsókn íslenskra kvikmynda. Myndina sáu 442 í vikunni en alls nemur heildarfjöldi gesta 11,601 eftir níundu sýningarhelgi.

Villibráð sáu 188 í vikunni, en alls nemur heildarfjöldi gesta 55,978 eftir 16. sýningarhelgi.

172 gestir sáu Napóleonsskjölin í vikunni, en alls hafa 28,515 séð hana eftir 12. sýningarhelgi.

Volaða land sáu 163 í vikunni, en alls nemur fjöldi gesta 4,033 eftir sjöundu sýningarhelgi.

Óráð sáu 94 í vikunni en alls nemur heildaraðsókn 1,650 gestum eftir fjórðu sýningarhelgi.

Aðsókn á íslenskar myndir 17.-23. apríl 2023

VIKUR MYND AÐSÓKN (SÍÐAST) ALLS (SÍÐAST)
9 Á ferð með mömmu 442 (615) 11,601 (11,159)
16 Villibráð 188 (341) 55,978 (55,790)
12 Napóleonsskjölin 172 (189) 28,515 (28,343)
7 Volaða land 163 (231) 4,033 (3,870)
4 Óráð 94 (161) 1,650 (1,556)

(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR