[Stikla] Heimildamyndin KORTER YFIR SJÖ lýsir harðvítugum verkfallsátökum 1955, frumsýnd 9. september

Heimildamyndin Korter yfir sjö verður frumsýnd 9. september í Bíó Paradís. Myndin segir frá verkfallinu 1955 í Reykjavík sem var eitt harðvítugasta verkfall í sögu landsins.

Verkalýðsfélögin lögðu áherslu á félagsleg réttindi en pólitískir straumar réðust oft af kalda stríðinu. Reykjavík var sett í herkví, hafnir lokaðar og vegatálmanir settir upp við alla vegi til borgarinnar. Oft var hart tekist á, bæði á götum úti og í fjölmiðlum og varð borgin mjólkurlaus, kaffilaus og bensínlaus í nærri sex vikur. Verkfallsverðir tóku olíuskip í gíslingu til að stöðva dælingu í Keflavík, á Faxaflóa og í Hvalfirði og líkkistur meðal annars notaðar undir smygl á vörum til borgarinnar. Smygl var daglegt brauð en mörg heimili þó nánast matarlaus áður en yfir lauk.

Myndin segir einnig frá aðdraganda verkfallsins sem hafði víðtæk áhrif á íslenskt samfélag fram eftir 20. öldinni, upprisu verkalýðs, og vaxandi og litríku menningar- og mannlífi borgarinnar sem einkenndist af innflutningi á áður óséðum munaði en einnig af braggahverfum og mikillri fátækt. Aldrei hefur borgin búið við slíkt umsátursástand.

Myndin skartar kvikmyndabútum og ljósmyndum sem ekki hafa komið fyrir sjónir almennings síðan 1955 sem og fanga stemmingu borgarinnar á umbrotatímum.

Passport Miðlun er framleiðandi verksins. Handrit skrifa Sigurður Pétursson og Einar Þór Gunnlaugsson, sem einnig leikstýrir.

Stikla verksins er hér:

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR