![](https://i0.wp.com/klapptre.is/wp-content/uploads/2019/02/Hvítur-hvítur-dagur-mynd-Join-Motion-Pictures.jpg?resize=696%2C464&ssl=1)
Hvítur, hvítur dagur eftir Hlyn Pálmason nálgast tíu þúsund gesti eftir fjórðu viku.
Alls sáu 855 myndina í vikunni, en heildaraðsókn nemur nú 9,752 manns eftir fjórar sýningarhelgar.
176 gestir sáu Héraðið í vikunni, en myndin hefur nú fengið alls 9,748 gesti eftir sjö helgar.
Aðsókn á íslenskar myndir 23.-29. sept. 2019
VIKUR | MYND | AÐSÓKN | HEILDAR- AÐSÓKN | STAÐA HEILDAR- AÐSÓKNAR Í SÍÐUSTU VIKU |
---|---|---|---|---|
4 | Hvítur, hvítur dagur | 855 | 9,752 | 8,897 |
7 | Héraðið | 176 | 9,748 | 9,572 |