[Stikla] „Héraðið“ frumsýnd 14. ágúst

Héraðið eftir Grím Hákonarson verður frumsýnd í Senubíóunum miðvikudaginn 14. ágúst. Stikla myndarinnar er komin út og má skoða hér.

Héraðið gerist í litlu samfélagi og segir sögu Ingu, miðaldra kúabónda, sem gerir uppreisn gegn kaupfélaginu á staðnum. Hún reynir að fá aðra bændur í lið með sér en það gengur erfiðlega þar sem kaupfélagið hefur sterk ítök í sveitinni.

Arndís Hrönn Egilsdóttir fer með hlutverk Ingu í myndinni. Hún hefur meðal annars leikið í sjónvarpsþáttunum Pressu og Föngum og í kvikmyndinni Þröstum en hún var tilnefnd til Edduverðlaunanna fyrir hlutverkið í þeirri síðastnefndu. Með önnur hlutverk í myndinni fara þau Sveinn Ólafur Gunnarsson, Sigurður Sigurjónsson, Hinrik Ólafsson, Hannes Óli Ágústsson og Edda Björg Eyjólfsdóttir.

Héraðið var tekin upp á rjómabúinu Erpsstöðum í Dölum, á Hvammstanga og Blöndósi. Myndin er íslensk-, dönsk-, þýsk-, og frönsk samframleiðsla en aðalframleiðandi myndarinnar er Grímar Jónsson hjá Netop Films, sem framleiddi bæði Hrúta og Undir trénu.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR