Aðsókn | 18 þúsund á „Undir trénu“ eftir aðra helgi

Undir trénu nýtur áfram góðrar aðsóknar en nú hafa um 18 þúsund manns séð myndina eftir aðra sýningarhelgi. Myndin fer úr öðru sæti í það fyrsta.

Um helgina sáu myndina 4,688 manns en alls 10,474 í vikunni. Heildarfjöldi gesta nemur nú 17,976 manns.

Heimildamyndin Skjól og skart eftir Ásdísi Thoroddsen var frumsýnd í Bíó Paradís um helgina og fékk 129 gesti.

Ég man þig er nú komin með 47,047 gesti eftir 20 vikur í sýningum. Hjartasteinn hefur fengið alls 22,661 gesti eftir 36 vikur og heimildamyndin Out of Thin Air hefur fengið 640 gesti eftir 6 vikur í sýningum.

Aðsókn á íslenskar myndir 11.-17. september 2017

VIKURMYNDAÐSÓKNHEILDAR-
AÐSÓKN
STAÐA HEILDAR-
AÐSÓKNAR Í SÍÐUSTU VIKU
2Undir trénu10,47417,9767,502
20Ég man þig14647,04746,901
Skjól og skart129129-
36Hjartasteinn6622,66122,595
5Out of Thin Air9640631
(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR