RIFF kynnir myndirnar í keppnisflokknum

riff_lundinn_2015Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík kynnti í dag þær 12 myndir sem keppa munu í flokknum Vitranir, aðalverðlaunaflokki hátíðarinnar.

Í flokknum tefla tólf nýir leikstjórar fram sinni fyrstu eða annarri mynd og keppa um aðalverðlaunin Gullna lundann. Verkin eru valin með það að leiðarljósi að þau ögri viðteknum gildum í kvikmyndagerð og vísi þannig veg kvikmyndalistarinnar til framtíðarinnar.

Áður hefur verið tilkynnt að nýjasta mynd Rúnars Rúnarssonar, Þrestir, verður Íslandsfrumsýnd á RIFF og tekur þátt í keppnisflokknum. Rúnar hlaut einmitt Gullna lundann árið 2011 fyrir fyrsta verk sitt Eldfjall.

Allar myndirnar í flokknum eru Norðurlandafrumsýndar á hátíðinni. Meðal mynda sem vakið hafa sérstaka athygli undanfarin misseri má nefna hina bandarísku Krisha eftir Trey Edward Shults. Myndin fjallar um samnefnda persónu sem snýr aftur til fjölskyldu sinnar eftir langvarandi baráttu við áfengisfíkn þar sem gömul sár ýfast aftur upp á yfirborðið. Myndin vann til bæði dómnefndar- og áhorfendaverðlaun á South by Southwest hátíðinni í ár.

Mediterranea eftir Ítalann Jonas Carpignano segir sögu tveggja innflytjenda sem leggja á sig erfitt ferðalag frá Burkínó Fasó til Ítalíu í leit að betri lífi. Myndin greinir frá misjöfnu hlutskipti þeirra við komuna til Ítalíu og togstreitunni sem það veldur. Myndin hlaut One Future verðlaunin á kvikmyndahátíðinni í Munchen.

Þá ber að nefna kanadísku myndina Sleeping Giant eftir Andrew Cividino. Uppvaxtarsaga unglingspiltsins sem kynnist tveimur frændum í sumarfríi. Þegar hann kynnist sársaukafullu leyndarmáli þeirra reynir mjög á vinskapinn. Myndin var valinn besta verk upprennandi leikstjóra á kvikmyndahátíðinni í Munchen.

Leikstjórar þessara mynda ásamt fleirum sem keppa í flokknum munu sitja fyrir svörum eftir sýningu þeirra á hátíðinni.

Formaður dómnefndar í ár er Frederik Boyer sem starfar sem bæði listrænn stjórnandi kvikmyndahátíðarinnar í Tribeca og Les Arcs í Frakklandi. Aðrir dómnefndarmeðlimir eru Agnes Johansen kvikmyndaframleiðandi, Laufey Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri Kvikmyndamiðstöðvar, Dagmar Borelle og Paola Corvino.

Myndir í flokknum VITRANIR:

AS I OPEN MY EYES / A PEINE J’OUVRE LES YEUX Leyla Bouzid FRA/TUN/BEL/ARE Túnis, sumarið 2010, skömmu fyrir byltinguna. Farah er 18 ára. Hún er nýútskrifuð og fjölskyldan vonast til að hún fari í læknanám. Farah er ekki jafnviss; hún syngur í pólitískri rokkhljómsveit, elskar lífið og að detta í það. Hún kannar ástina og stórborgina að næturlagi, allt í óþökk móður sinnar sem gjörþekkir Túnis og hættur hennar.

BABAI Visar Morina KOS/DEU Nori er útsjónarsamur tíu ára drengur sem framfleytir sér með því að selja vindlinga á götum Kósóvó ásamt föður sínum Gesim. Hart er í ári og þegar feðgarnir hafa ekki í nein hús að venda heldur Gesim til Þýskalands í von um betra líf. Nori er staðráðinn í að fylgja föður sínum og heldur einn síns liðs í hættuför gegnum Evrópu í leit að honum.

BARASH Michal Vinik ISR Þegar ný stelpa með öðruvísi hágreiðslu byrjar í skólanum breytist líf Na’ama Barash. Hún er 17 ára og grútleiðist úthverfalífið með fjölskyldu sinni. Nýja stelpan kynnir hana aftur á móti fyrir spennandi heimi fíkniefna, lesbía og kynlífs. Skyndilega er lífið spennandi og allar hugmyndir hennar um heiminn gætu breyst.

Stikla ekki fáanleg enn.

KRISHA Trey Edward Shults USA Krisha snýr aftur til fjölskyldu sinnar eftir langa baráttu við fíkn. Það sem hefst sem fallegur vitnisburður um vilja og getu fjölskyldunnar til að fyrirgefa snýst fljótt upp í andhverfu sína þegar gömul sár rifna upp og gremja brýst upp á yfirborðið. Vann bæði dómnefndar- og áhorfendaverðlaun á South by Southwest hátíðinni 2015.

MEDITERRANEA Jonas Carpignano ITA/FRA/USA/DEU/QAT Tveir vinir ferðast frá Burkina Faso til Ítalíu í leit að betra lífi. En líf innflytjandans er erfiðara en þeir bjuggust við. Ayiva aðlagast vel og er boðinn velkominn á heimili vinnuveitanda síns. Abas þarf hins vegar að glima við mun erfiðari aðstæður. Myndin hlaut ‘One Future’ verðlaunin á kvikmyndahátíðinni í München.

A MOTHERLAND / ANA YURDU Senem Tüzen TUR/GRC Þegar Nesrin snýr aftur í þorp foreldra sinna til að ljúka við skáldsöguna sína og uppfylla drauminn um að verða rithöfundur bankar íhaldssöm móðir hennar óvænt upp á og neitar að fara. Mæðgurnar neyðast því til að horfast í augu við myrkrið í sálu hvorrar annarrar. Myndin hlaut verðlaun í Istanbúl og Thessaloniki meðan hún var enn á þróunarstigi.

Stikla ekki fáanleg enn.

SLEEPING GIANT Andrew Cividino CAN Sumarfríið verður heldur líflegra þegar táningurinn Adam vingast við frændurna Riley og Nate sem sukka og stökkva fram af klettum. Þegar upp kemst um sársaukafullt leyndarmál reynir mjög á vinskapinn og drengirnir verða aldrei samir. Valin besta myndin eftir upprennandi leikstjóra á kvikmyndahátíðinni í München.

SLOW WEST John McClean GBR/NZL Jay er ungur Skoti sem ferðast þvert yfir Bandaríkin í leit að Rose, konunni sem hann elskar. Á ferð sinni kynnist hann útlaganum Silas sem slæst í för með honum sem leiðsögumaður. Jay veit ekki að Rose er eftirlýst og fé sett til höfuðs henni, lífs eða liðinni. Myndin vann dómnefndarverðlaunin á Sundance kvikmyndahátíðinni 2015.

ÞRESTIR Rúnar Rúnarsson ICE/DEN/CRO Þrestir er dramatísk mynd sem fjallar um 16 ára pilt sem sendur er á æskustöðvarnar vestur á firði til að búa með föður sínum sem hann hefur ekki séð í ein sex ár. Síðasta mynd Rúnars, Eldfjall, (á RIFF 2011) vann til 18 stórverðlauna um heim allan.

THE HERE AFTER / EFTERSKALV Magnus von Horn SWE/POL John snýr aftur á heimili föður síns eftir dvöl í fangelsi fyrir ástríðuglæp sem hann framdi sem bráðlátur unglingur. Nú vill hann snúa baki við fortíðinni og reyna að aðlagast að nýju samfélaginu sem hann kvaddi með svo afdrifaríkum hætti nokkrum árum fyrr. En það eru ekki allir jafn tilbúnir til að fyrirgefa.

WE MONSTERS / WIR MONSTER Sebastian Ko GER Skömmu eftir að Paul og Christine skilja gera þau sér grein fyrir áhrifunum á unglingsdóttur þeirra Söruh. Hún verður óstýrilát og vís til alls, meðal annars að myrða bestu vinkonu sína. Þau reyna að vernda dóttur sína með því að hylma yfir glæp hennar. Þannig sameinast fjölskyldan á ný en sektarkennd, lygar og launráð varða veg þeirra til glötunar.

WEDNESDAY MAY 9 / CHAHARSHANBEH, 19 ORDIBEHESHT Vahid Jalilvand IRA Óvenjuleg auglýsing í dagblaði í Tehran stefnir saman aragrúa fólks sem telur að auglýsingin sé lausn vandamála sinna. Lögreglan tekur við að dreifa mannfjöldanum og ná stjórn á stöðunni. En tvær konur í hópnum ætla ekki að gefast upp.

 

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR