Greining | Sveppi 4 nálgast þriðja tugþúsundið

algjör Sveppi og Gói bjargar málunum still2-sveppiFjórða Sveppamyndin, Algjör Sveppi og Gói bjargar málunum, gefur ögn eftir á þriðju sýningarhelgi og er nú í þriðja sæti aðsóknarlistans. Alls komu 9.558 manns á myndina í liðinni viku, þar af 4.135 um helgina. Myndin hefur því fengið alls 27.955 gesti.

Borgríki 2 Ólafs de Fleur er nú í tíunda sæti eftir fimmtu sýningarhelgi. 121 sá myndina um helgina en alls 764 yfir vikuna. Heildaraðsókn frá upphafi nemur 10.856 manns.

Grafir og bein er í ellefta sæti eftir þriðju sýningarhelgi með alls 539 gesti í vikunni, þar af 108 um helgina. Samtals hafa 3.471 séð myndina frá upphafi.

Afinn er nú í tólfta sæti eftir áttundu sýningarhelgi. Alls hafa 14.647 séð myndina frá upphafi, þar af 342 síðastliðna viku.

AÐSÓKN VIKUNA 10.-16. nóv. 2014:

VIKURMYNDAÐSÓKNHEILDARAÐSÓKN
3Algjör Sveppi og Gói bjargar málunum9.55827.955
5Borgríki 276410.856
3Grafir og bein539 3.471
8Afinn342 14.647
(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR