„Borgríki 2“ frumsýnd

Darri Ingólfsson (fremst) í Borgríki 2.
Darri Ingólfsson (fremst) í Borgríki 2.

Almennar sýningar hefjast á morgun föstudag á Borgríki 2 – blóð hraustra manna í leikstjórn Ólafs de Fleur Jóhannessonar. Myndin er sjálfstætt framhald Borgríkis sem sýnd var 2011.

Myndin segir frá Hannesi, metnaðarfullum yfirmanni innra eftirlits lögreglunnar. Til að ráða niðurlögum stórra glæpasamtaka ákveður hann að rannsaka Margeir, spilltan yfirmann í fíkniefnadeild lögreglunnar, eftir að hafa fengið ábendingu frá Gunnari, fyrrum glæpaforingja, sem situr í fangelsi. Hannes felur ungri lögreglukonu, Andreu,að njosna um ferðir Margeirs. Aðgerðirnar leiða Hannes á hálan ís þar sem erfitt reynist að halda skýru höfði eftir því sem hann kemst nær takmarki sínu, að ná bæði Margeiri og erlenda glæpaforingjanum.

Ólafur skrifar einnig handritið ásamt Hrafnkeli Stefánssyni. Í helstu hlutverkum eru Darri Ingólfsson, Ágústa Eva Erlendsdóttir, Ingvar E. Sigurðsson, Zlatko Krickic, Sigurður Sigurjónsson og Hilmir Snær Guðnason. Framleiðendur eru Kristín Andrea Þórðardóttir og Ragnar Santos.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR