spot_img

Horfðu á KURTEIST FÓLK hér

Olaf de Fleur hefur gert kvikmynd sína Kurteist fólk (2011) aðgengilega á netinu.

Olaf segir á Facebook síðu sinni:

Ég heyri oft að erfitt sé að nálgast íslenskt efni, svo ég ákvað að skrifa þennan póst og setja kvikmyndina Kurteist fólk á netið fyrir þá sem hafa áhuga. Eftir að hafa ferðast víða um heim við kvikmyndagerð var það einstök upplifun að snúa aftur í heimabæinn minn, Búðardal, þar sem hversdagslegt rými æskuáranna blandaðist gefandi samstarfi við leikara og frábært tökulið. Kurteist fólk segir frá óhæfum verkfræðingi sem lýgur sig inn í samfélag á Vesturlandi og þykist geta komið sláturhúsi staðarins í gang á ný. Óafvitandi flækist hann inn í litla heimsstyrjöld sem kraumar í einkalífi íbúa og pólitík bæjarfélagsins. Aðalhlutverk: Stefán Karl Stefánsson, Eggert Þorleifsson, Ágústa Eva Erlendsdóttir, Halldóra Geirharðsdóttir, Hilmir Snær Guðnason, Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og Benedikt Erlingsson.

Hægt er að kaupa myndina og hlaða henni niður í fullum gæðum, auk þess að sjá efni um gerð hennar hér:

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR