![Ása Helga Hjörleifsdóttir leikstjóri.](https://i0.wp.com/klapptre.is/wp-content/uploads/2014/01/ása-helga-hjörleifsdóttir.jpg?resize=300%2C200&ssl=1)
Ása Helga Hjörleifsdóttir og Páll Grímsson kynna bæði verkefni sín á samframleiðslumarkaðinum sem haldin er í tengslum við Berlínarhátíðina (6.-16. febrúar). Um er að ræða fyrstu bíómyndir hvors leikstjóra.
Verkefni Ásu kallast Svanurinn og er byggt á samnefndri sögu Guðbergs Bergssonar. Hlín Jóhannesdóttir og Birgitta Björnsdóttir hjá Vintage Pictures eru framleiðendur.
Verkefni Páls kallast Afterlands. Um er að ræða hrollvekjuþriller sem gerist á Norðurpólnum 1872 og er byggður á sönnum atburðum. Kanadískt fyrirtæki, Alcina Pictures, framleiðir.