„Vonarstræti“ besta frumraunin á Tallinn Black Nights

Þorsteinn Bachmann sem Móri í Vonarstræti.
Þorsteinn Bachmann sem Móri í Vonarstræti.

Vonarstræti Baldvins Z var valin besta frumraunin á Tallinn Black Nights kvikmyndahátíðinni í Eistlandi. Myndin tók þátt í Tridens keppni hátíðarinnar, sem er ætluð fyrstu eða annarri kvikmynd leikstjóra frá Eystrasalts- og Norðurlöndunum. Að launum hlutu aðstandendur verðlaunagrip og 5000 evra vinningsfé sem leikstjóri og framleiðendur deila með sér.

Júlíus Kemp, annar framleiðanda myndarinnar, veitti verðlaununum viðtöku auk þess sem Baldvin Z sendi þakklætiskveðju með myndskeiði. Baldvin gat ekki verið viðstaddur verðlaunaafhendinguna vegna anna við tökur á sjónvarpsþáttaröðinni Ófærð, þar sem hann er einn leikstjóra ásamt Baltasar Kormáki; Berki Sigþórssyni og Óskari Þór Axelssyni.

Vonarstræti er framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna 2015. Verðlaunaafhendingin mun fara fram þann 22. febrúar og allar tilnefningar verða kunngjörðar 15. janúar.

Vonarstræti hlaut einnig aðalverðlaun fyrir bestu mynd á Norrænum kvikmyndadögum í Lübeck í Þýskalandi og hefur t.a.m. hlotið góðar viðtökur á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Toronto og Zurich Film Festival, þar sem Hera Hilmarsdóttir hlaut sérstök dómnefndarverðlaun fyrir leik sinn í myndinni.

Þess má geta að Hross í oss, sem nýlega vann kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs, hlaut þrenn verðlaun á Tallinn Black Nights kvikmyndahátíðinni í fyrra, þar á meðal fyrir bestu frumraun líkt og Vonarstræti í ár.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR