Þessi 10 verk keppa um bestu stuttmyndina á RIFF

Tíu nýjar íslenskar stuttmyndir keppa um verðlaun fyrir bestu myndina á RIFF í  ár.

Sýningar á myndunum fara fram í tveimur hlutum og horft er á hvorn þeirra í heilu lagi. Sýningar munu fara fram í Háskólabíó þann 30. september á fyrri hlutanum og 1. október á þeim seinni.

Dómnefnd skipa Marek Hovorka, stofnandi og stjórnandi Ji.hlava alþjóðlegu heimildarmyndahátíðarinnar, Tatiana Hallgrímsdóttir, forstöðumaður menningarmála hjá The Reykjavik Edition og Búi Dam leikstjóri, leikari og tónlistarmaður.

RÚV og Trickshot munu veita verðlaun fyrir bestu stuttmyndina sem tilkynnt verður í lokahófi RIFF þann 7. október.

Þær myndir sem sýndar verða í stuttmyndakeppni RIFF þetta árið eru eftirfarandi:

Fyrri sýning: 30. september í Háskólabíói

Stages / Sorgarstig
Hörður Freyr Brynjarsson, Stroud Rohde Pearce, IS, 2023, 32 min
Heimsfrumsýning / World Premiere

Hópur hæfileikaríkra tónlistarmanna hittist í kjölfar föðurmissis í yfirgefinni rafstöð til að spinna saman. Með hjálp tónlistarinnar takast þeir á við hin ýmsu stig sorgarinnar og nota tónlistina til að tjá tilfinningar sínar.

Moon Pie Vanilla
Erlendur Sveinsson, IS, US, 2023, 5 min
Heimsfrumsýning / World Premiere

Taugaveiklaður ræningi kemur í afskekkta sjoppu með það í huga að ræna hana, en lendir í óþægilegum aðstæðum þegar hann áttar sig á því að hann er ekki sá eini í þeim erindagjörðum.

Together / Sjoppa
Ísak Hinriksson, IS, 2023, 7 min
Heimsfrumsýning / World Premiere

Maður gengur inn í sjoppu og hittir stelpu. Einlæg saga frá Ísak Hinrikssyni sem hefur áður gefið út stuttmyndirnar Skeljar (2017) og Afsakið (2018).

All Around / Allt um kring
Birna Ketilsdóttir Schram, IS, DK, 2023, 5 min
Heimsfrumsýning / World Premiere

Katharina gengur frá hlutum ömmu sinnar eftir að hún deyr og upplifir minningar og leitar að nærveru hennar allt um kring. Persónuleg stuttmynd um missi og hina eilífu von um að hittast aftur.

Bookswapping (Late summer in Reykjavík) / Bókaskipti (Síðsumar í Reykjavík)
Bergur Árnason, IS, 2023, 25 min
Niðurdreginn rithöfundur rekst á dularfullan miða í bók sem hún finnur í almenningsgarðinum í hverfinu. Hún byrjar að skrifa skilaboð til baka og með henni og hinum ókunnuga miðahöfundi þróast óvenjulegt samband.

Seinni sýning: 1. október í Háskólabíói

Sorrow Eats the Heart / Sorg étur hjarta
Haukur Hallsson, IS, CZ, 2023, 26 min
Norðurlandafrumsýning / Nordic Premiere

Eftir átakanleg sambandsslit við kærustuna fer leiklistarneminn Angantýr í gegnum ýmis sorgarstig á meðan hann undirbýr sig fyrir lokaverkefnið á önninni. Haukur Hallsson hefur áður sent frá sér myndirnar MÍR: Hundred Years of Revolution (2020) og Koreny (2016)

That Time at the Beach / Strandglöp / Huller i Sandet
Oddur S. Hilmarsson, IS, DK, 2023, 33 min
Leifur, maður sem þjáist af dularfullum ótta við sjóinn og bældum minningum um einelti, býður fyrrum kvalara sínum birginn á bekkjarmóti í tilraun til að afhjúpa sannleikann, finna frið og kannski skilja hvað gerðist í fortíðinni.

Primal Instinct / Frumeðli
Brynja Valdís Gísladóttir, IS, 2023, 12 min
Norðurlandafrumsýning / Nordic Premiere

Sara er einhleyp, einmana og rótlaus blaðakona á miðjum aldri, sannfærð um að barn sé svarið við tómleikanum. Hún er að komast úr barneign en lífið er aldrei bara einfalt.

Rammi úr stuttmyndinni Náttúrubönd eftir Sven Peetoom, Grímu Irmudóttur og Jonathan Damborg.

Nature Bonds / Náttúrubönd
Sven Peetoom, Gríma Irmudóttir, Jonathan Damborg, IS, 2023, 11 min
Norðurlandafrumsýning / Nordic Premiere

Náttúrubönd er ljóðræn rannsókn á breyttu sambandi okkar við íslenska náttúru og landslag. Við fylgjumst með fjórum einstaklingum; aktívista, dansara, vísindamanni og líffræðingi á ferðalagi um náttúruna. Þeir harma missi hinnar deyjandi fegurðar náttúrunnar og sinnar eigin tengingar við hana.

Vestige / Ummerki
Joe Simmons, UK, 2023, 12 min
Norðurlandafrumsýning / Nordic Premiere

Ungur drengur leitar svara eftir að pabbi hans týnist á sjó. Þegar hann finnur undarlegan steingerving á ströndinni í Yorkshire, telur drengurinn sig hafa uppgötvað hluta af ráðgátunni.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR