RIFF hefur kynnt þær íslensku stuttmyndir sem sýndar verða á hátíðinni sem hefst 29. september. Myndirnar, sem flestar eru ný verk ungra og upprennandi leikstjóra, verða sýndar í tveimur hollum líkt og oft áður.
Myndirnar eru:
Íslenskar stuttmyndir I
Bara við tvö / Toutes les deux /Just the Two of Us
Clara Lemaire Anspach FR, 2022, 20 min
Alma veit að ef móðir hennar neitar að gangast undir læknismeðferð mun hún deyja. Alma ákveður því að fara í síðustu mæðgnaferðina til Suður Frakklands þar sem hún neyðist til að finna innri styrk til að kveðja móður sína.
Clara Lemaire Anspach vann fyrst sem leikstjóri í Frakklandi og á Íslandi áður en hún sneri sér að skrifum eftir að hafa farið í nám í handritaskrifum. Síðan þá hefur hún unnið bæði sem handritshöfundur fyrir sjónvarp og bíómyndir, ásamt því að vinna sjálfstætt sem leikstjóri.
Þegar trén koma / When the Trees Come
Berglind Þrastardóttir IS, DE, 2022, 15 min
Þar sem trén vaxa á berangrinum á Íslandi, fara orðrómar á flug á milli trjánna um að varúlfarnir séu að snúa aftur!
Eftir að hafa lokið við meistaragráðu í klínískri sálfræði, sagði Berglind skyndilega skilið við skólabekkinn og ákvað að beita þekkingu sinni í skapandi miðlum. Verk hennar hvetja fólk til að sjá hlutina á margslunginn hátt, bæði innra og ytra. Berglind lærir nú leikstjórn við Deutsche Film- und Fernsehakademie í Berlín.
Sprungur / Fractures
Vala Ómarsdóttir, María Kjartans IS, 2021, 14 min
Kona er að jafna sig á geðsjúkdómi. Hún hefur einangrað sig frá öllum í kringum sig og reynir að sjá um sig en eftir ótal tilraunir til að endurnýja sambandið við heiminn brotnar hún smám saman niður.
Vala Ómarsdóttir útskrifaðist úr Goldsmiths með M.A í leikstjórn og gjörningalist frá Goldsmiths College, háskólanum í London, og M.A í sviðslist frá Royal Central School of Speech and Drama, líka í London. Hún var tilnefnd til Grímuverðlaunanna fyrir bestu leikstjórn árið 2022. María Kjartans útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands árið 2005 og með MFA gráðu úr Listaháskólanum í Glasgow árið 2007.
Our Journey / Ferðin okkar
Arnar Freyr Tómasson IS, 2021, 20 min
Tumi er blindur maður sem ferðast á stað sem minnir hann á konu sína, sem hann hefur misst. Á leiðinni til baka lendir hann í hindrunum sem hann sá ekki fyrir.
Arnar Freyr Tómasson útskrifaðist úr Kvikmyndaskóla Íslands árið 2017. Útskriftarmynd hans, Sif, vann verðlaun sem besta myndin í hans deild. Síðan þá hefur hann gert tvær stuttmyndir: Hvað höfum við gert (2019) og Ferðin okkar (2021).
Hide / Feluleikur
Margrét Seema Takyar IS, 2022, 15 min
Eftir að hafa lesið yfirþyrmandi fréttir um heimilisofbeldi ákveður Sigurbjörg að deila svohljóðandi tilboði á Facebook: „Ef þú ert í vanda get ég komið til þín.“ Þegar hún fær skilaboð frá óþekktri manneskju um að koma strax, ákveður hún að hlýða kallinu.
Margrét Seema Takyar er íslenskur-indverskur leikstjóri, kvikmyndatökukona og handritshöfundur sem býr í Reykjavík. Hún er með BA (hons) gráðu í sviðslistum og dans frá Middlesex University í London og MFA gráðu í leiklist og leikstjórn frá New School for Drama/Actors Studio í New York. Flest verk hennar snúast um að skilja fólk, dýr og aðstæður til að geta ögrað samfélagsnormum.
Ómar / Guts
Álfgerður Malmquist Baldursdóttir DE, IS, 2022, 22 min
Á hverjum degi mætir Ómar klukkutíma fyrr í vinnuna og syngur þar í laumi. Á hverjum degi horfir hann einnig á eftir Kristínu á leið sinni í vinnuna. Þegar myndband af honum syngjandi ratar á netið, umturnast daglega lífi hans og verður til þess að Ómar þarf að takast á við gamalt óöryggi.
Álfgerður Malmquist Baldursdóttir er kvikmyndatökumaður, leikstjóri og handritshöfundur frá Íslandi. Hún ólst upp í sveit á Austurlandi, umlukin náttúru og dýrum. Nú býr Álfgerður í Berlín, þar sem hún útskrifaðist nýlega með B.A gráðu í kvikmyndaframleiðslu í Catalyst Institute for Creative Arts and Technology. Í kvikmyndum sínum leitar hún skapandi leiða til að sýna einfaldleika lífsins. Flest verka hennar sýna sterk tengsl við náttúruna.
Íslenskar stuttmyndir II
Óvissuferð / Surprise
Kolfinna Nikulásdóttir IS, 2022, 11 min
Ragnar bindur fyrir augun á Hildi fyrir óvissuferð á afmælinu hennar. Það á að vera gaman en Hildur er stressuð og Ragnar er pirraður. Óvænti glaðningurinn breytist í hræðilega martröð.
Kolfinna Nikulásdóttir er fjölhæfur listamaður frá Íslandi. Verk hennar sýna kvenlegan reynsluheim á sjálfsævisögulegum nótum. Kolfinna spyr spurninga til að endurhugsa samfélagið og hegðun fólks í gegnum sögur. Hún hefur verið tilnefnd og unnið til margra verðlauna fyrir verk sín. Óvissuferð, sem er hennar fyrsta mynd, var nýlega tilnefnd sem besta norræna stuttmyndin á Nordisk Panorama.
Ástand breytinga / In a State of Change
Donal Boyd, Frank Nieuwenhuis IS, 2022, 26 min
Á meðan íslenskir jöklar minnka vegna hlýnunar jarðar, vandræðast ljósmyndari með að láta myndir sínar hafa áhrif í þágu málstaðarins. Hvernig miðlum við brýnasta vandamáli allra tíma? Hugleiðing um hlutverk fegurðar og vísbendingarnar um breytt landslag.
Donal Boyd, náttúrulífsljósmyndari og náttúruverndarsinni, og Frank Nieuwenhuis, kvikmyndatökumaður, hafa unnið saman við þó nokkur kvikmyndaverkefni sem tengjast baráttu fyrir náttúru og dýralífi. Verk þeirra beina sjónum að tengslum manna við merkilega atburði í náttúrunni, eins og sjá má í fyrstu mynd þeirra, Volcano for the People og þeirri nýjustu Ástand breytinga.
A Gray Cat / Grár köttur
Bergur Árnason IS, 2021, 5 min
Ung kona lagar kaffi og sest niður með kærasta sínum til að tala við hann en henni reynist erfitt að orða tilfinningar sínar. Hún segir honum frá draumi sem hana dreymdi um kött.
Bergur Árnason stundaði nám við Kvikmyndaskóla Íslands frá 2017–2019. Þar gerði hann fyrstu stuttmyndir sínar: Gulrætur og Mánudag. Síðan hann útskrifaðist hefur hann unnið hjá RÚV við þáttagerð fyrir börn ásamt því að vinna við ýmis sjálfstæð kvikmyndaverkefni.
Samræmi / Concord
Kristín Eysteinsdóttir IS, 2022, 20 min
Listamaðurinn Sigga fremur gjörning í teiti hjá fína fólkinu í útlöndum. Eftir gjörninginn fer hún á barinn á hótelinu og rekst þar á íslenska flugáhöfn og kvöldið tekur óvænta stefnu.
Kristín Eysteinsdóttir lærði leikhúsfræði við Háskólann í Árósum og leikstjórn fyrir leikhús við Goldsmiths háskólann í London. 2014–2020 starfaði Kristín sem leikhússtjóri Borgarleikhússins.
Holes / Holur
Oddur Sigþór Hilmarsson IS, 2022, 17 min
Þegar Jón vaskar upp tekur hann eftir holum í höndunum á sér. Hann lætur það ekki á sig fá en áttar sig svo að holurnar dreifa úr sér. Jón reynir að fela þær, meðhöndla þær en án árangurs. Að lokum sættir hann sig við örlög sín – dauðann.
Oddur S. Hilmarsson er leikstjóri frá Íslandi. Þegar hann var í menntaskóla leikstýrði hann nokkrum stuttmyndum, rómantíkinni A Love Song [Mansöngur] (2020), hasargamanmyndin Fantastic Violence [Stórkostlegt ofbeldi] (2021) og Sci-Fi dystópíu, Róbot (2021).
Girðing / Fence / Hegn
Hilke Rönnfeldt DK, DE, 2021, 12 min
Villisvín vilja vera með ræktuðu svínunum. Ástkona vill vera með ástinni sinni. Stuttmynd um það sem getur komið upp á milli.
Hilke Rönnfeldt er handritshöfundur og leikstjóri sem fjallar um samfélög í dreifbýli, uppvaxtarárin, nánd, einangrun og sjóinn.
Chasing Birds / Að elta fugla
Una Lorenzen IS, 2022, 8 min
Þegar heimurinn snýst á hvolf höfum við val um að halda fast í gamlar hugmyndir eða fagna nýtilkomnu útsýni. Saga um litla stelpu sem leikur sér að því að elta fugl í gegnum óreiðukennt tímabil umbreytinga.
Una Lorenzen er kvikmyndaleikstjóri sem notar hreyfimyndagerð til að búa til sjónræna heima í kvikmyndum, heimildamyndum, tónlist og leikhúsi. Síðustu ár hefur hún unnið við heimildamyndir, til dæmis verðlaunamyndina Yarn (2016) og Rebel Hearts (2021). Una lærði grafíska hönnun á íslandi og tilraunakennda hreyfimyndagerð við Calarts í Kaliforníu. Hún hefur auk þess unnið við margar kanadískar hreyfimyndir.