Sagafilm auglýsir eftir deildarstjóra dagskrárdeildar

Sagafilm hefur auglýst eftir deildarstjóra Dagskrárdeildar. Leitað er að öflugum einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á dagskrár- og heimildamyndagerð og getur unnið í krefjandi en skemmtilegu starfsumhverfi, segir í auglýsingu.

Dagskrárstjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri dagskrár- og heimildamyndagerðar í Sagafilm og vinnur í nánu samstarfi við dagskrárstjóra sjónvarpsstöðva á Íslandi og víðsvegar um heiminn.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þróun verkefna og gerð kynningarefnis og kostnaðar- og fjármögnunaráætlana fyrir verkefni, upptökur og útsendingar
  • Samningagerð og eftirfylgni samninga við viðskiptavini
  • Undirbúningur, gerð og eftirfylgni styrktarumsókna í sjóði, ef svo ber undir
  • Útbýr framleiðsluáætlanir frá undirbúningi og þróun til loka eftirvinnslu í samráði við viðskiptavini

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Mikil reynsla á sviði dagskrár- og heimildamyndagerðar er skilyrði
  • Mjög góð íslensku og ensku kunnátta
  • Mjög mikilvægt að vera góður í mannlegum samskiptum
  • Skipulagshæfileikar, góð yfirsýn og öguð vinnubrögð
  • Mjög góð tölvukunnátta
HEIMILDAlfred.is
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR