LEYNILÖGGA yfir 39 þúsund gesti

Leynilögga er í þriðja sæti eftir sjöttu helgi.

Leynilöggu sáu alls 1,317 gestir í vikunni. Heildaraðsókn eftir sjöttu sýningarhelgi nemur 39,034 gestum.

Fjölskyldumyndina Birtu sáu 306 í vikunni en alls hefur hún fengið 5,164 gesti eftir fjórðu sýningahelgi.

Dýrið sáu 40 í vikunni sem leið en alls hefur myndin fengið 6,601 gesti eftir tíundu sýningarhelgi.

Aðsókn á íslenskar myndir 22.-28. nóv. 2021

VIKURMYNDAÐSÓKN (SÍÐAST)ALLS (SÍÐAST)
6Leynilögga 1,317 (2,519)39,034 (37,717)
4Birta306 (759)5,164 (4,858)
10Dýrið40 (35)6,601 (6,561)
(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR