DÝRIÐ frumsýnd á 600 tjöldum í Bandaríkjunum

Dýrið, eða Lamb eins og hún heitir erlendis, verður sýnd á 600 tjöldum í Bandaríkjunum, en hún verður frumsýnd 8. október.

Segir í fréttatilkynningu að aldrei áður hafi íslensk kvikmynd fengið jafn mikla almenna dreifingu vestanhafs og er það til marks um það hversu mikla trú A24, dreifingaraðili myndarinnar, hefur á henni.

Myndin opnar á sama degi og James Bond en A24 dreifingaraðilar Dýrsins í Bandaríkjunum eru vissir um að myndin fá góða aðsókn og muni höfða til hóps yngri áhorfenda í Bandaríkjunum en þeirra sem sækja Bond myndirnar.

“Við vitum að kvikmyndin Dýrið/Lamb er einstök perla, aðgengileg, sorgleg og fyndin. Viðbrögðin á forsýningum hafa staðfest það og yfir tíu milljónir hafa horft á kynningarstikluna. Myndin hefur alla burði til að slá í gegn hér í Bandaríkjunum og við erum ofboðslega spennt fyrir því að frumsýna hana svona stórt,” segir David Laub hjá A24.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR