Northern Wave í tólfta sinn

Alþjóðlega stuttmyndahátíðin Northern Wave verður haldin í tólfta sinn helgina 25.-27. október í Frystiklefanum á Rifi, Snæfellsbæ. Hátíðin býður upp á fjölbreytt úrval alþjóðlegra stuttmynda, hreyfimynda, vídeóverka og íslenskra tónlistarmyndbanda auk annar viðburða, til að mynda fiskiréttasamkeppni, fyrirlestra, vinnustofur og tónleika svo dæmi séu nefnd.

Dagskrána má finna hér.

Kvikmyndatökumaðurinn Bergsteinn Björgúlfsson er heiðursgestur hátíðarinnar í ár en hann er einn af okkar fremstu kvikmyndatökumönnum og tók m.a. Hross í oss, Kona fer í stríð og Ófærð. Hann verður með meistarspjall stýrt af Steinunni Ólínu Þorvarðardóttur leikkonu sem er með honum í dómnefnd hátíðarinnar.

Jafnrétti og kynjahlutföll hafa verið eitt af leiðarljósum hátíðarinnar frá upphafi. Það er mikilvægt fyrir ungar konur og kvikmyndagerðarkonur að eiga fyrirmyndir og geta speglað sig í kvikmyndum. Hátíðin hefur lagt mikla áherslu á að vekja athygli á þessu með ólíkum leiðum. Síðustu þrjú ár hafa konur verið meirihluti í dómnefnd hátíðarinnar og verið heiðursgestir hátíðarinnar en auk þess hafa verið haldnar pallborðsumræður á vegum Wift um stöðu kvenna í kvikmyndagerð.

Hátíðin hefur bæði tekið up F-Rating kerfið og skrifaði nýverið undir 5050by2020 samkomulagið á Carl International Film Festival, ásamt þremur öðrum norrænum kvikmyndahátíðum. Fjallað var um undirskriftina í Screen Daily.

Þann 24.-25 október verður haldin stór vinnusmiðja, Norrænar stelpur skjóta, fyrir ungar konur í kvikmyndagerð á Norðurlöndum í Grundarfirði í tengslum við hátíðina samstarfi við samstarfsaðila á Grænlandi, í Færeyjum, Noregi og Svíþjóð og Stelpur Skjóta á Íslandi. Vinnusmiðjan er samstarfsverkefni hátíðarinnar við Stelpur skjóta, Wift og Wift Nordic og er fullfjármögnuð m.a. af Norbuk og Kvikmyndamiðstöð Íslands. Sjá valda þátttakendur og vinnustofuna hér.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR