„Lof mér að falla“ með 12 tilnefningar til Eddunnar, „Kona fer í stríð“ með 10

Elín Sif Halldórsdóttir er tilnefnd í flokki leikkonu ársins í aðalhlutverki fyrir leik sinn í Lof mér að falla.

Tilnefningar til Eddunnar 2019 voru kynntar í dag. Lof mér að falla fær flestar tilnefningar eða 12 talsins. Kona fer í stríð kemur fast á eftir með tíu tilnefningar og Andið eðlilega fær níu.

Alls voru 118 verk send inn í keppnina, sem er heldur meira en undanfarin ár. Að auki voru 214 innsendingar í fagverðlaun Eddunnar. Gjaldgeng voru sjónvarps- og kvikmyndaverk sem voru sýnd opinberlega á tímabilinu 1. janúar 2018 til 31. desember 2018, en sérstaka athygli vekur að heimildamyndin 690 Vopnafjörður er tilnefnd í flokki heimildamynda en hún var frumsýnd 2017. Beðið er skýringa á þessu (aths. 11. feb 2018: sjá uppfærða frétt hér). Fjarvera sigurvegara síðustu Skjaldborgarhátíðar, Söngur Kanemu, er einnig einkennileg hvað flokk heimildamynda varðar.

Af innsendum verkum eru sjónvarpsverk alls 78 talsins. Innsendar kvikmyndir eru 7 og stuttmyndir 16. Heimildarmyndir eru 17 og 13 verk flokkast undir barna og unglingaefni.

Níu valnefndir hafa verið að störfum við að horfa á öll innsend verk og velja þau sem tilnefnd verða í þeim 26 verðlaunaflokkum Eddunnar. Endanleg kosning Akademíumeðlima á milli tilnefndra verka hefst svo 12.febrúar og stendur í rúma viku.

Eins og fyrri ár mun almenn kosning fara fram á ruv.is um „Sjónvarpsefni ársins“ og keppa alls 7 verk um þau verðlaun.

Edduverðlaunin verða veitt föstudagskvöldið 22. febrúar í Austurbæ og verður sýnt beint frá athöfninni á RÚV.

Tilnefningar eru sem hér segir:

Barna- og unglingaefni ársins
Víti í Vestmannaeyjum
Lói – þú flýgur aldrei einn
Stundin okkar

Frétta- eða viðtalsþáttur ársins
Krakkafréttir
Kveikur
Fósturbörn

Heimildamynd ársins
UseLess
Svona fólk 1970-1985
690 Vopnafjörður

Kvikmynd ársins
Kona fer í stríð
Andið eðlilega
Lof mér að falla

Leikið sjónvarpsefni ársins
Venjulegt fólk
Mannasiðir
Steypustöðin

Menningarþáttur ársins
Kiljan
Með okkar augum
Fullveldisöldin

Mannlífsþáttur ársins
Andstæðingar Íslands
Hæpið
Veröld sem var
Sítengd
Líf kviknar

Skemmtiþáttur ársins
Stundin okkar
Heimilistónajól
Áramótaskaup 2018

Stuttmynd ársins
Islandia
Nýr dagur í Eyjafirði
To Plant a Flag

Brellur ársins
Cem Olcer, Stephane Vogel og Annabelle Zoellin fyrir Kona fer í stríð
GunHil – Lói – þú flýgur aldrei einn
Kontrast og GunHil fyrir Flateyjargátuna

Búningar ársins
Eva Vala Guðjónsdóttir fyrir Andið eðlilega
Eva Vala Guðjónsdóttir fyrir Lof mér að falla
Margrét Einarsdóttir fyrir Flateyjargátuna

Gervi ársins
Kristín Júlla Kristjánsdóttir fyrir Andið eðlilega
Kristín Júlla Kristjánsdóttir fyrir Lof mér að falla
Kristín Júlla Kristjánsdóttir fyrir Varg

Handrit ársins
Baldvin Z & Birgir Örn Steinarsson fyrir Lof mér að falla
Benedikt Erlingsson og Ólafur Egill Egilsson fyrir Kona fer í stríð
Ísold Uggadóttir fyrir Andið eðlilega

Hljóð ársins
Emmanuel De Boissieu og Frédéric Meert fyrir Andið eðlilega
Aymeric Devoldere, Francois De Morant, Raphael Sohier og Vincent Cosson fyrir Kona fer í stríð
Huldar Freyr Arnarson fyrir Varg

Klipping ársins
Davíð Alexander Corno fyrir Kona fer í stríð
Elísabet Ronaldsdóttir og Sigvaldi J. Kárason fyrir Varg
Úlfur Teitur Traustason fyrir Lof mér að falla

Kvikmyndataka ársins
Bergsteinn Björgúlfsson fyrir Kona fer í stríð
Ita Zbroniec-Zajt og Ásgrímur Guðbjartsson fyrir Andið eðlilega
Jóhann Máni Jóhannsson fyrir Lof mér að falla

Leikari í aðalhlutverki
Eysteinn Sigurðsson fyrir Mannasiði
Gísli Örn Garðarsson fyrir Varg
Paaru Oja fyrir Undir Halastjörnu

Leikkona í aðalhlutverki
Elín Sif Halldórsdóttir fyrir Lof mér að falla
Kristín Þóra Haraldsdóttir fyrir Andið eðlilega
Halldóra Geirharðsdóttir fyrir Kona fer í stríð

Leikkona í aukahlutverki
Babetida Sadjo fyrir Andið eðlilega
Kristín Þóra Haraldsdóttir fyrir Lof mér að falla
Lára Jóhanna Jónsdóttir fyrir Lof mér að falla

Leikari í aukahlutverki
Kaspar Velberg fyrir Undir Halastjörnu
Sveinn Ólafur Gunnarsson fyrir Mannasiði
Þorsteinn Bachmann fyrir Lof mér að falla

Leikmynd ársins
Gunnar Pálsson & Marta Luiza Macuga fyrir Lof mér að falla
Heimir Sverrisson fyrir Varg
Snorri Freyr Hilmarsson fyrir Kona fer í stríð

Leikstjórn ársins
Baldvin Z fyrir Lof mér að falla
Benedikt Erlingsson fyrir Kona fer í stríð
Ísold Uggadóttir fyrir Andið eðlilega

Sjónvarpsmaður ársins
Alma Ómarsdóttir fyrir Fréttaannál 2018
Sigríður Halldórsdóttir fyrir Kveik
Sigrún Ósk Kristjánsdóttir fyrir Allir geta dansað
Sigyn Blöndal fyrir Stundina okkar og Sögur – þættir um sköpun, skrif og lestur
Viktoría Hermannsdóttir fyrir Sítengd

Tónlist ársins
Atli Örvarsson fyrir Lói – þú flýgur aldrei einn
Davíð Þór Jónsson fyrir Kona fer í stríð
Gyða Valtýsdóttir fyrir Undir Halastjörnu

Upptöku- eða útsendingastjórn ársins
Björgvin Harðarson fyrir Pál Óskar í Höllinni
Björgvin Harðarson fyrir Allir geta dansað
Þór Freysson fyrir Jólagesti Björgvins

Sjónvarpsefni ársins – Almenn kosning á ruv.is
Kveikur
Líf kviknar
Með okkar augum
Áramótaskaupið
Kiljan
Mannasiðir

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR