Eddan: breytingar á tilnefningum til heimildamynda

Breyting hefur orðið á tilnefningum Edduverðlaunanna í flokki heimildamynda og hefur stjórn Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar (ÍKSA) sent frá sér yfirlýsingu varðandi málið.

Athygli vakti þegar tilnefningar voru opinberaðar að heimildamyndin 690 Vopnafjörður var meðal tilnefndra í flokki slíkra mynda, en myndin var frumsýnd á Skjaldborgarhátíðinni 2017 og síðan sýnd í Bíó Paradís um haustið sama ár. Samkvæmt reglum ÍKSA skulu innsend verk hafa verið frumsýnd opinberlega á tímabilinu 1. janúar til og með 31. desember árið á undan hátíðinni – í þessu tilviki semsagt á árinu 2018.

Yfirlýsing stjórnar ÍKSA er svohljóðandi:

Sú breyting hefur orðið á áður kynntum tilnefningum til Eddunnar 2019 í flokki heimildamynda, að tilnefning myndarinnar 690 Vopnafjörður fellur út og í hennar stað er tilnefnd myndin Litla Moskva. Stjórn Íslensku Kvikmynda- og Sjónvarpsakademíunnar harmar þau mistök sem áttu sér stað þegar uphaflega var tilkynnt um tilnefningar og biður aðstandendur heimildamyndarinnar 690 Vopnafjörður innilega afsökunar á þeim.
Uppfærðan lista yfir tilnefningar má sjá að neðan.

Barna- og unglingaefni ársins
Víti í Vestmannaeyjum
Lói – þú flýgur aldrei einn
Stundin okkar

Frétta- eða viðtalsþáttur ársins
Krakkafréttir
Kveikur
Fósturbörn

Heimildamynd ársins
UseLess
Svona fólk 1970-1985
Litla Moskva

Kvikmynd ársins
Kona fer í stríð
Andið eðlilega
Lof mér að falla

Leikið sjónvarpsefni ársins
Venjulegt fólk
Mannasiðir
Steypustöðin

Menningarþáttur ársins
Kiljan
Með okkar augum
Fullveldisöldin

Mannlífsþáttur ársins
Andstæðingar Íslands
Hæpið
Veröld sem var
Sítengd
Líf kviknar

Skemmtiþáttur ársins
Stundin okkar
Heimilistónajól
Áramótaskaup 2018

Stuttmynd ársins
Islandia
Nýr dagur í Eyjafirði
To Plant a Flag

Brellur ársins
Cem Olcer, Stephane Vogel og Annabelle Zoellin fyrir Kona fer í stríð
GunHil – Lói – þú flýgur aldrei einn
Kontrast og GunHil fyrir Flateyjargátuna

Búningar ársins
Eva Vala Guðjónsdóttir fyrir Andið eðlilega
Eva Vala Guðjónsdóttir fyrir Lof mér að falla
Margrét Einarsdóttir fyrir Flateyjargátuna

Gervi ársins
Kristín Júlla Kristjánsdóttir fyrir Andið eðlilega
Kristín Júlla Kristjánsdóttir fyrir Lof mér að falla
Kristín Júlla Kristjánsdóttir fyrir Varg

Handrit ársins
Baldvin Z & Birgir Örn Steinarsson fyrir Lof mér að falla
Benedikt Erlingsson og Ólafur Egill Egilsson fyrir Kona fer í stríð
Ísold Uggadóttir fyrir Andið eðlilega

Hljóð ársins
Emmanuel De Boissieu og Frédéric Meert fyrir Andið eðlilega
Aymeric Devoldere, Francois De Morant, Raphael Sohier og Vincent Cosson fyrir Kona fer í stríð
Huldar Freyr Arnarson fyrir Varg

Klipping ársins
Davíð Alexander Corno fyrir Kona fer í stríð
Elísabet Ronaldsdóttir og Sigvaldi J. Kárason fyrir Varg
Úlfur Teitur Traustason fyrir Lof mér að falla

Kvikmyndataka ársins
Bergsteinn Björgúlfsson fyrir Kona fer í stríð
Ita Zbroniec-Zajt og Ásgrímur Guðbjartsson fyrir Andið eðlilega
Jóhann Máni Jóhannsson fyrir Lof mér að falla

Leikari í aðalhlutverki
Eysteinn Sigurðsson fyrir Mannasiði
Gísli Örn Garðarsson fyrir Varg
Paaru Oja fyrir Undir Halastjörnu

Leikkona í aðalhlutverki
Elín Sif Halldórsdóttir fyrir Lof mér að falla
Kristín Þóra Haraldsdóttir fyrir Andið eðlilega
Halldóra Geirharðsdóttir fyrir Kona fer í stríð

Leikkona í aukahlutverki
Babetida Sadjo fyrir Andið eðlilega
Kristín Þóra Haraldsdóttir fyrir Lof mér að falla
Lára Jóhanna Jónsdóttir fyrir Lof mér að falla

Leikari í aukahlutverki
Kaspar Velberg fyrir Undir Halastjörnu
Sveinn Ólafur Gunnarsson fyrir Mannasiði
Þorsteinn Bachmann fyrir Lof mér að falla

Leikmynd ársins
Gunnar Pálsson & Marta Luiza Macuga fyrir Lof mér að falla
Heimir Sverrisson fyrir Varg
Snorri Freyr Hilmarsson fyrir Kona fer í stríð

Leikstjórn ársins
Baldvin Z fyrir Lof mér að falla
Benedikt Erlingsson fyrir Kona fer í stríð
Ísold Uggadóttir fyrir Andið eðlilega

Sjónvarpsmaður ársins
Alma Ómarsdóttir fyrir Fréttaannál 2018
Sigríður Halldórsdóttir fyrir Kveik
Sigrún Ósk Kristjánsdóttir fyrir Allir geta dansað
Sigyn Blöndal fyrir Stundina okkar og Sögur – þættir um sköpun, skrif og lestur
Viktoría Hermannsdóttir fyrir Sítengd

Tónlist ársins
Atli Örvarsson fyrir Lói – þú flýgur aldrei einn
Davíð Þór Jónsson fyrir Kona fer í stríð
Gyða Valtýsdóttir fyrir Undir Halastjörnu

Upptöku- eða útsendingastjórn ársins
Björgvin Harðarson fyrir Pál Óskar í Höllinni
Björgvin Harðarson fyrir Allir geta dansað
Þór Freysson fyrir Jólagesti Björgvins

Sjónvarpsefni ársins – Almenn kosning á ruv.is 
Kveikur
Líf kviknar
Með okkar augum
Áramótaskaupið
Kiljan
Mannasiðir

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR