Norrænu sjónvarpsstöðvarnar útvíkka samstarf um stóraukna framleiðslu á leiknu sjónvarpsefni

Norrænu sjónvarpsstöðvarnar DR, NRK, RÚV, SVT og YLE hafa sammælst um nýja áætlun sem lýtur að auknum gagnkvæmum skiptum í formi samframleiðslu og sýninga á leiknu sjónvarpsefni. Útvarpsstjórar norrænu sjónvarpsstöðvanna undirrituðu samkomulagið á fundi sínum í Stokkhólmi í gær, fimmtudag.

Í tilkynningu frá RÚV segir meðal annars um þetta:

Markmiðið er að framleiða og bjóða upp á meira og vandaðra leikið, norrænt sjónvarpsefni. Samhliða verður lögð aukin áhersla á framboð slíks efnis í ólínulegri dagskrá í vefspilurum og efnisveitum sjónvarpsstöðvanna sem njóta síaukinna vinsælda.

Áætlunin byggir meðal annars á fyrirhugaðri aukningu á norrænni samframleiðslu og þar af leiðandi auknu framboði á norrænu, leiknu efni. Nýjum samráðshópi verður gert að stuðla að enn frekara samstarfi um framleiðslu, á milli norrænu stöðvanna og sjálfstæðra framleiðenda með skjótari og markvissari hætti en hingað til.

– „Leiknar, norrænar sjónvarpsþáttaraðir keppa við besta sjónvarpsefni sem í boði er á alþjóðavísu. Þessi nýja sameiginlega áætlun okkar og aukið samstarf er skref í átt að enn sterkara framboði af leiknu sjónvarpsefni en norrænar sjónvarpsstöðvar í almannaþjónustu geta boðið í dag, sjónvarpsefni sem einn daginn verður hluti af sameiginlegum menningararfi okkar,“

segir Maria Rørbye Rønn, útvarpsstjóri DR. Og Magnús Geir Þórðarson, útvarpsstjóri RÚV, segir:

– „Við segjum sögur úr nærumhverfi okkar, sögur sem skipta máli – sögur sem endurspegla umhverfi okkar og menningu betur en bandarískt afþreyingarefni. Með þessu samkomulagi býðst áhorfendum okkar enn meira gæðaefni frá Norðurlöndunum og sjónvarpsstöðvar og spilarar almannaþjónustumiðlanna verða þekktir sem heimili þessa efnis.“

Nordvision-samstarfið vinnur að því að styrkja sjónvarp í almannaþjónustu á Norðurlöndunum og stuðla að auknu samstarfi milli landanna þegar kemur að framleiðslu sjónvarpsefnis. Samstarfsaðilarnir samframleiða og skiptast á sjónvarpsefni, þróa hugmyndir og deila þekkingu. Það spannar ríflega 4.500 sjónvarpsþætti á hverju ári.

Á síðasta ári var slegið met í samframleiðslu með 1.626 sjónvarpsþáttum. Af þeim voru 267 þættir leikið efni. Nokkur dæmi um nýtt sjónvarpsefni og annað sem vænta má á næstunni á norrænum og alþjóðlegum markaði er Brúin/Broen (SVT og DR), Vegir drottins/Herrens veje (DR), Monster (NRK), Vår tid är nu (SVT), The Independence Day (YLE) og Fangar (RÚV).

RÚV hefur að undanförnu stóraukið áherslu og framboð á leiknu íslensku efni. Í þeim tilgangi var RÚV myndir stofnað, fagráð sett á laggirnar, handritaráðgjafi ráðinn og árlegt framlag í þennan málaflokk hækkað. Samhliða hefur samstarf RÚV við norrænu stöðvarnar og aðra erlenda samstarfsaðila verið aukið. Stefna RÚV er að vinna stærstan hluta þessara verkefna í samstarfi við sjálfstæða framleiðendur hér á landi. Afrakstur þessa er meðal annars þáttaraðir eins og Ófærð, Fangar, Hraunið og Loforð. Fjölmörg verkefni eru í þróun og má þar nefna Ófærð 2, Fangar 2, Flateyjargátuna, Sjálfstætt fólk, Valhalla Murders og Ráðherrann. Íslenskt sjónvarpsefni hefur farið um allan heim og eftirspurn eftir íslensku leiknu efni erlendis hefur aldrei verið meiri. Til að mæta þeirri eftirspurn hóf RÚV samstarf við DR sales sem selur íslenskt leikið efni á erlendri grundu.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR