„Frægð á Flateyri“ vinnur Gamanmyndahátíð Flateyrar

Jón Hjörtur Emilsson (til vinstri) hampar verðlaunum sínum á Gamanmyndahátíð Flateyrar 2017.

Gamanmyndahátíð Flateyrar fór fram í annað sinn um nýliðna helgi. Tæplega 700 gestir sóttu viðburði á hennar vegum. Alls voru sýndar 23 íslenskar gamanmyndir á hátíðinni í ár og þar af sjö frumsýningar. Áhorfendur völdu fyndnustu mynd hátíðarinnar í kosningu og varð gamanmyndin Frægð á Flateyri hlutskörpust.

Frægð á Flateyri eftir Jón Hjört Emilsson var tekin upp á fyrstu Gamanmyndahátíðinni 2016, og er leikin heimildarmynd (mockumentary) sem fjallar um bróðir Jóns, Emil Alfreð Emilsson, sem er að fara á sína fyrstu kvikmyndahátíð, öruggur um að vinna hana, en margt fer út um þúfur í ferðinni.

C-vítamín eftir Guðnýju Rós Þórhallsdóttir lenti í öðru sæti og hlaut því titilinn Næstum því fyndnasta gamanmyndin.

Þá var Þráinn Bertelsson heiðraður fyrir framlag sitt til gamanmynda á Íslandi. Veitti hann verðlaununum viðtöku og í framhaldi af því var sérstök heiðurssýning á gamanmyndinni Nýtt líf.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR