![Hera Hilmarsdóttir í Vonarstræti eftir Baldvin Z.](https://i0.wp.com/klapptre.is/wp-content/uploads/2014/01/hera-vonarstræti.jpg?resize=696%2C394&ssl=1)
Tómas Valgeirsson á vefnum Bíófíkill skrifar umsögn um Vonarstræti Baldvins Z. og er mjög sáttur:
Tómas segir meðal annars:
Fyrir fjórum árum, þegar Baldvin Z steig fram í sviðsljósið með óvæntum Óróa var orðið nokkuð fljótt áberandi að hér væri kominn kvikmyndagerðarmaður með vit, hjarta, öflugan skilning á umfjöllunarefni sínu og talent fyrir tilgerðarleysi. Margir upprennandi leikstjórar – sérstaklega hér á skerinu – láta sig lengi dreyma um svo vel heppnaða frumraun í fullri lengd eins og realíska unglingainnlitið reyndist vera, þar sem sérstæður vókall Baldvins blæs svo vel í gegnum einlæga dramatík og húmor á milli til að létta af.
Íslensk kvikmyndagerð tekur núna nýtt skref í rétta átt, því með Vonarstræti hefur tekist að fanga samskonar áhrif með, e.t.v. kröftugri, ögn skýrari og miklu persónulegri.
Pistil Tómasar má sjá hér: Vonarstræti | Bíófíkill.