Veðurskeytin er leikin heimildarmynd sem fjallar um stormasöm tímamót í lífi ástríðufulls fræðimanns; dramatísk vegferð inn á óþekkt svæði mannshugans. Marteinn Helgi Sigurðsson, doktor í miðaldafræðum frá Cambridge-háskóla, sem hefur unnið til mikilla afreka á sínu sviði, þarf skyndilega að endurskoða líf sitt þegar hann er greindur með geðhvarfasýki. Hann þarf annað hvort að takast á við andleg veikindi sín á hefðbundinn hátt eða finna nýja leið til að lifa með nýjum áskorunum á eigin forsendum, með þeim veðrabrigðum sem vænta má.
Bergur Bernburg skrifar einnig handrit ásamt Jóni Atla Jónassyni. Anders Koch og Bergur stýra kvikmyndatöku, Bergur klippir einnig ásamt Kristjáni Loðmfjörð. Tónlist gera Kjartan Hólm og Sindri Már Sigfússon. Aðalframleiðandur eru Friðrik Þór Friðriksson, Magnús Árni Skúlason, Margrét Jónasdóttir og Bergur Bernburg. Meðframleiðendur eru Kristján Ingimarsson og Þór Tjörvi Þórsson hjá Sagafilm.