Palestínubíó í Bíótekinu

Bíótekið hefur sýningar á nýju ári með fjórum ólíkum kvikmyndum frá Palestínu í Bíó Paradís sunnudaginn 28. janúar. 

Dagskráin sunnudaginn 28. janúar er svona:

15:00 – Stuttmyndir frá Palestínu
The Present (2020) – 25 mínútur
Á brúðkaupsafmæli sínu leggja Yusef og dóttir hans upp í verslunarferð á Vesturbakkann til
að kaupa gjöf fyrir eiginkonuna. En til að gera það þurfa þau að þræða sig milli eftirlitsstöðva og hermanna og gæta þess að ganga á vegum aðgreindum frá öðrum þegnum borgarinnar. Hversu flókin getur eiginlega ein verslunarferð verið? Myndin, sem er leikstýrt af bresk-palestínska leikstjóranum Farah Nabulsi, fór á stuttlista fyrir tilnefningar til Óskarsverðlaunanna árið 2021. Farah sagði í viðtali um kvikmyndina að listir og kvikmyndir bjargi kannski hvorki heiminum né Palestínu en að án lista og kvikmynda verði hvorki heimurinn né Palestína frjáls.

A Boy, a Wall and a Donkey (2008) – 4 mínútur
Hópur ungra drengja sem er staðráðinn í að gera kvikmynd lætur skort á kvikmyndabúnaði
ekki standa í vegi fyrir áformum sínum. Drengirnir ákveða að fara að landamærunum þar
sem kvikmyndatökuvélarnar eru. Þessi stuttmynd eftir Hany Abu Assad, sem er palestínskur og hollenskur kvikmyndagerðarmaður, var framleidd að frumkvæði Sameinuðu þjóðanna og er ein af tuttugu og tveimur stuttmyndum eftir alþjóðlega listamenn sem fjalla á einn eða annan hátt um mannréttindi og mannlega reisn. Hany Abu Assad hefur tvisvar verið tilnefndur til Óskarsverðlauna auk margra annarra alþjóðlegra verðlauna. Jamal Awar, leikstjóri og doktorsnemi, segir frá stuttmyndunum og höfundum þeirra og Farah Nabulsi, leikstjóri The Present tekur þátt í spurt og svarað eftir sýningu.

Kl. 16:30

Wajib (2017) – 96 mínútur
Annemarie Jacir leikstýrir þessari dramatísku og skemmtilegu kvikmynd. Hún segir frá föður sem hefur misst tengslin við son sinn en neyðist til að endurvekja þau til að bera með honum út boðskort í brúðkaup dóttur sinnar eins og hefð er fyrir í Palestínu. Þegar myndin kom út árið 2017 vann hún til ótal verðlauna á kvikmyndahátíðum um allan heim.
Jamal Awar, leikstjóri og doktorsnemi stýrir spurt og svarað eftir sýningu.

Kl. 19:15

The Time That Remains (2009) – 109 mínútur
Stórkostleg og frumleg kvikmynd eftir margverðlaunaðan palestínskan leikstjóra, Elia
Suleiman, sem fékk verðlaun fyrir ævistarf sitt á Evrópsku kvikmyndaverðlaunahátíðinni
þegar hún var haldin á Íslandi á síðasta ári. Kvikmyndin, sem keppti um Gullpálmann á
Cannes árið 2009, er hálfævisöguleg og segir sögu fjölskyldu frá stofnun Ísraelsríkis árið
1948 til dagsins í dag. Kvikmyndin hefur fengið margar alþjóðlegar viðurkenningar og er allt í senn, dramatísk, fyndin og falleg. Eftir kvikmyndina munu Ísold Uggadóttir leikstjóri og Jamal Awar, leikstjóri og doktorsnemi stýra umræðum.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR