[Stikla] EUROGARÐURINN hefst 27. september á Stöð 2

Úr þáttaröðinni Eurogarðurinn.

Þáttaröðin Eurogarðurinn hefst á Stöð 2 þann 27. september. Þættirnir eru átta talsins og gerast í Húsdýragarðinum.

Eurogarðurinn fjallar um drykkfelldan miðaldra braskara með vafasaman viðskiptaferil sem kaupir Húsdýragarðinn en karakterinn er leikin af Jóni Gnarr. Hann hefur stórkostlegar hugmyndir um framtíð garðsins sem hann kallar Eurogarðinn, sem hann sér fyrir sér ná upp í sömu stærðargráðu og Disney-World.

Lykilatriði í framkvæmd hans á stórfenglegum hugmyndum sínum er að virkja starfsfólk garðsins með sér. Þau eiga því miður ekki auðvelt með að sætta sig við nýjan eiganda og þær hugmyndir sem hann hefur um framtíð Húsdýragarðsins. Starfsfólkið er mislitur hópur fólks með ólíkar væntingar um lífið og framtíðina og því ekki ólíklegt að þau verði hindrun í vegi hans.

Arnór Pálmi Arnarson leikstýrir en Glassriver er framleiðandi verksins. Með helstu hlutverk fara Jón Gnarr, Anna Svava Knútsdóttir, Auðunn Blöndal, Steindi Jr. og Dóri DNA.

Sjá nánar hér: Fyrsta sýnishorn úr sjónvarpsþættinum Eurogarðurinn – Vísir

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR