Aðsókn | SÍÐASTA VEIÐIFERÐIN enn vinsælasta myndin

Eftir fjórtándu sýningarhelgi (þar af átta helgar í sýningum) er Síðasta veiðiferðin enn á toppi aðsóknarlistans þar sem hún hefur verið frá frumsýningu í byrjun mars. Nú hafa yfir 22 þúsund gestir séð myndina.

1,821 sáu myndina í vikunni miðað við 2,289 gesti vikuna áður. Nemur heildarfjöldi gesta nú 22,023 manns.

ATH: Kvikmyndahúsin lokuðu þann 24. mars vegna kórónaveirufaraldursins og opnuðu aftur 4. maí.

Aðsókn á íslenskar myndir 1.-7. júní 2020

VIKURMYNDAÐSÓKNALLS (SÍÐAST)
14Síðasta veiðiferðin1,82122,023 (20,202)
(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR