[Stikla] Heimildamyndin „Can’t Walk Away“ í sýningum

cant-walk-away-herbertHeimildamyndin Can’t Walk Away, um Herbert Guðmundsson tónlistarmann, er nú í sýningum í Sambíóunum Egilshöll. Höfundar myndarinnar eru Friðrik Grétarsson og Ómar Sverrisson.

Í myndinni er saga hans er rakin í máli og myndum, allt frá barnæsku til dagsins í dag. Í kynningu frá framleiðendum segir:

Can’t Walk Away er heimildarmynd um mann sem hefur lagt allt í sölurnar fyrir frægðina. Herbert er tónlistarmaður af lífi og sál og líður best þegar hann er að troða upp, hvort sem það er sem söngvari, sölumaður eða ræðumaður. Í þessari mynd verður varpað ljósi á líf og drauma, sigra og ósigra Herberts. Hann hefur orðið gjaldþrota, á að baki brotin hjónabönd, fíkniefnavanda, atvinnuleysi og einelti en hefur aldrei misst móðinn. Hvað er leyndarmálið? Hvernig heldur maður í vonina og trúna, hið góða í lífinu og að velgengnin sé alltaf rétt handan við hornið. Saga Herberts hefur almenna skírskotun vegna hinna einstöku hæfileika hans að vera jákvæður og vinna úr vonbrigðum og mótlæti sem hann verður fyrir þannig að úr verði eitthvað gott.

Myndin var frumsýnd þann 15. október síðastliðinn.

 

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR