![Gunnar Jónsson er Fúsi í samnefndri mynd Dags Kára.](https://i0.wp.com/klapptre.is/wp-content/uploads/2015/03/gunnar-jónsson-fusi5.jpg?resize=696%2C292&ssl=1)
Kjartan Már Ómarsson skrifar í Fréttablaðið um Fúsa Dags Kára og segir meðal annars:
Þetta er myndræn kvikmynd þar sem persónur stíga inn í frásögnina fullmótaðar án þess að miklu púðri sé eytt í baksögur eða endalausar útlistanir á óþarfa smáatriðum. Áhorfanda er treyst til þess að vera virkur og taka þátt í merkingarsköpun sögunnar sem veldur því að áhorfið er gefandi en ekki aðeins leið til að sálga níutíu mínútum. Þetta er saga sem snertir við manni.
Niðurstaða: Degi Kára tekst að skapa hjartnæma sögu sem virðist vera látlaus á yfirborðinu en þegar nánar er að gætt má sjá hvernig tekið er á málefnum á borð við hleypidóma, mörkin milli bernsku og fullorðinsára, vinskap og gæsku.
Sjá nánar hér: Vísir – Saga sem snertir við manni.