Greining | Sveppi 4 á lokasprettinum, aðrar búnar

algjör Sveppi og Gói bjargar málunum still2-sveppiAlgjör Sveppi og Gói bjargar málunum er áfram í fimmta sæti aðsóknarlistans eftir sjöttu sýningarhelgi. Myndina sáu 796 manns í liðinni viku, þar af 429 um helgina. Myndin hefur fengið alls 31.846 gesti.

Afinn er nú í 14. sæti eftir elleftu sýningarhelgi. Alls hafa 14.894 séð myndina frá upphafi.

Sýningum á París norðursins, Borgríki 2 og Grafir og bein er lokið.

Ljóst er að 2014 verður næst aðsóknarhæsta ár í sögu íslenskra kvikmynda frá því formlegar mælingar hófust 1996.

AÐSÓKN VIKUNA 1.-7. des. 2014:

VIKURMYNDAÐSÓKNHEILDARAÐSÓKN
5Algjör Sveppi og Gói bjargar málunum796 31.846
9Afinn8414.894
(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR