Fréttablaðið: Engir veikir hlekkir í Vonarstræti

vonarstræti collageLilja Katrín Gunnarsdóttir gagnrýnandi Fréttablaðsins sparar ekki hástigs lýsingarorðin í hrifningu sinni á Vonarstræti Baldvins Z.

Lilja Katrín segir meðal annars:

Ég hef lagt mig fram í gegnum tíðina við að fara á allar íslenskar kvikmyndir. Sumar hafa hreyft við mér, sumar alls ekki. En aldrei hef ég áður séð íslenska kvikmynd eins og Vonarstræti. Því ætla ég hreinlega að skella fram þessari bláköldu fullyrðingu og mun berjast fyrir því að verja hana með kjafti og klóm um ókomna tíð: Vonarstræti er besta íslenska kvikmynd sögunnar.

En það er eiginlega ekki nóg til að lýsa gæðum myndarinnar. Hún er nefnilega ekki aðeins besta mynd íslenskrar kvikmyndsögu heldur getur hæglega keppt við stórar kvikmyndir á alþjóðlegum markaði.

Það sem gerir þessa mynd svona stórkostlega er mjög einfalt. Hér eru engir veikir hlekkir. Því keðjan er jú bara jafn sterk og veikasti hlekkurinn. Auðvitað eru hlekkirnir missterkir en enginn fárveikur.

Sterkasti hlekkurinn þegar kemur að leik, að öllum öðrum ólöstuðum, er Þorsteinn Bachmann. Aldrei hef ég séð íslenskan leikara túlka sína persónu jafn vel. Þorsteinn fer ekki í eina sekúndu klisjukennda eða yfirborðslega leið í hlutverki fylliraftsins Móra. Þorsteinn þarf engan stuðning. Engar myndrænar lýsingar á því sem hann ber með sér. Hann segir það allt en þó minnst í orðum heldur í andardrætti, augnatilliti, hreyfingum og tóni. Ég saknaði hans þegar hann var ekki á skjánum og hann á þann heiður að hafa verið fyrstur íslenskra leikara til að græta mig í bíó. Ég hef nefnilega aldrei grátið yfir íslenskri bíómynd fyrr en á Vonarstræti. Og nei, ég táraðist ekki bara. Ég hágrét. Og þegar myndinni lauk hélt ég áfram að gráta. Bravó, Þorsteinn, bravó. Ég vona að allt Ísland, allur heimurinn fái að njóta þinna hæfileika. Það sama má segja um leikstjórann Baldvin Z. Með þessari mynd skipar hann sér í röð okkar fremstu leikstjóra.

Dóminn í heild má lesa með því að smella á myndina hér fyrir neðan.

vonarstræti-fbl-dómur

 

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR