„Holding Hands for 74 Years“ hlýtur áhorfendaverðlaun Reykjavik Shorts & Docs Festival

Þau hlutu áhorfendaverðlaun Reykjavík Shorts & Docs Festival 2014: Eyþór Jóvinsson (Sker), Sigríður Þóra Ásgeirsdóttir (Holding Hands for 74 Years), Vera Sölvadóttir og Guðrún Edda Þórhannesdóttir (Leitin að Livingstone). Til hægri: Brynja Dögg Friðriksdóttir og Heather Millard stjórnendur hátíðarinnar.

Reykjavík Shorts&Docs Festival lauk í gær. Áhorfendaverðlaun voru veitt fyrir bestu íslensku stutt- og heimildamyndina. Fyrstu verðlaun að þessu sinni hlaut Sigríður Þóra Ásgeirsdóttir fyrir mynd sína Holding Hands For 74 Years. Myndin fjallar um hjónin Lúðvík og Arnbjörgu. Sagan hefst í Reykjavík 1939 og áhorfendur kynnumst hvernig æskuást þeirra þroskaðist og dafnaði í 74 ár.

Önnur verðlaun hlaut stuttmyndin Sker eftir Eyþór Jóvinsson og í þriðja sæti var myndin Leitin að Livingstone eftir Veru Sölvadóttur.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR