HeimEfnisorðNatatorium

Natatorium

Morgunblaðið um NATATORIUM: Eins og mjög fallegt púsluspil sem vantar nokkur púsl í

"Áhorfendur bíða svo alla myndina eftir því að flett sé af dulúðinni en það er aldrei gert. Í staðinn sitja þeir eftir jafn undrandi og í byrjun myndarinnar af því að of margir lausir þræðir eru skildir eftir til túlkunar," skrifar Jóna Gréta Hilmarsdóttir meðal annars í Morgunblaðið um Natatorium eftir Helenu Stefánsdóttur.

Lestin um NATATORIUM: Flagð undir fögru skinni

Kolbeinn Rastrick, kvikmyndagagnrýnandi Lestarinnar á Rás 1 segir um Natatorium Helenu Stefánsdóttur að henni takist að halda athygli áhorfenda þrátt fyrir ákveðna vankanta á handritinu.

Fleiri jákvæðar umsagnir um NATATORIUM frá Rotterdam

Jákvæðar umsagnir um Natatorium eftir Helenu Stefánsdóttur halda áfram að berast frá Rotterdam hátíðinni. Sýningar á Íslandi hefjast 23. febrúar.

Hollywood Reporter um NATATORIUM: Glæsileg fyrsta mynd

"Með aðeins þrjár stuttmyndir að baki hefur Helena Stefánsdóttir gert glæsilega fyrstu bíómynd, með frábærum leikhópi og sterku teymi bakvið myndavélina", skrifar Sheri Linden í Hollywood Reporter um Natatorium sem sýnd er á Kvikmyndahátíðinni í Rotterdam.

[Stikla] NATATORIUM kemur í bíó 23. febrúar

Sálfræðitryllirinn Natatorium eftir Helenu Stefánsdóttur verður frumsýnd á Íslandi 23. febrúar. Heimsfrumsýning verður í lok janúar á Rotterdam hátíðinni.

NATATORIUM heimsfrumsýnd á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Rotterdam í janúar

Kvikmynd Helenar Stefáns Magneudóttur, Natatorium, verður heimsfrumsýnd á IFFR – alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Rotterdam, sem fram fer 25. janúar - 4. febrúar 2024. Myndin verður sýnd í flokknum Bright Futures, þar sem kastljósinu er beint að frumraunum leikstjóra í fullri lengd.
spot_imgspot_img

NÝJUSTU FÆRSLUR