FULLT HÚS nálgast 14 þúsund gesti eftir fimmtu helgi, NATATORIUM í 16. sæti eftir frumsýningarhelgina

Fullt hús er áfram í öðru sæti. Natatorium var frumsýnd á föstudag og er í 16. sæti.

Fullt hús er áfram í öðru sæti. Myndina sáu 1,876 gestir í vikunni en alls eru gestir 13,933 eftir fimmtu sýningarhelgi.

Natatorium var frumsýnd á föstudag og sáu hana 131 yfir helgina. Hún er í 16. sæti. Opnunarhelgin er á pari við opnunarhelgi kvikmyndarinnar Tilverur síðastliðið haust. Alls nam heildaraðsókn á Tilverur 1,452 gestum.

Aðsókn á íslenskar myndir 19.-25. febrúar 2024

VIKUR MYND AÐSÓKN (SÍÐAST) ALLS (SÍÐAST)
5 Fullt hús  1,876 (2,690) 13,933 (12,057)
Natatorium  131 (helgin) 731 (með forsýningu)

(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR