Þáttaröðin Felix og Klara, sem skrifuð er af Ragnari Bragasyni og Jóni Gnarr, hefur hlotið rúmlega 18 milljón króna styrk frá Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðnum. Mystery framleiðir fyrir RÚV.
Stikla spennuþáttaraðarinnar Brot (The Valhalla Murders) í leikstjórn Þórðar Pálssonar, Davíðs Óskars Ólafssonar og Þóru Hilmarsdóttur, hefur verið opinberuð. Þættirnir, sem eru alls átta talsins, hefja göngu sína 26. desember á RÚV.
Bandarísk/íslenska spennumyndin Autumn Lights, sem tekin var upp hér á landi á síðasta ári, verður frumsýnd í Bandaríkjunum í október. Mystery er meðframleiðandi myndarinnar, sem jafnframt skartar íslenskum leikurum og starfsliði. Myndin verður sýnd í Bíó Paradís í byrjun nóvember.
Þáttaröðin Fangar fékk á dögunum tæplega 27 milljóna króna styrk frá Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðnum. Verkefnið, sem fer í tökur í vor undir stjórn Ragnars Bragasonar, hefur þegar verið selt til norrænu sjónvarpsstöðvanna og víðar auk RÚV. Mystery framleiðir.
Sjónvarpsþáttaröðin Fangar verður sýnd á öllum ríkissjónvarpsstöðum Norðurlandanna, DR í Danmörku, NRK í Noregi, SVT í Svíþjóð og YLE í Finnlandi auk RÚV á Íslandi. Þá hefur hún einnig verið seld til Canal+ í Póllandi. Sölufyrirtækið Global Screen annast sölu á alþjóðlegum vettvangi, en tökur á þáttaröðinni hefjast á vormánuðum undir stjórn Ragnars Bragasonar.
Plakat kvikmyndarinnar Bakk hefur verið afhjúpað. Ómar Hauksson er hönnuður en Árni Filippusson, sem jafnframt er tökumaður og einn framleiðenda myndarinnar, sá um myndatöku. Bakk verður frumsýnd í byrjun maí.
Stikla fyrir kvikmyndina Bakk í leikstjórn Davíðs Óskars Ólafssonar og Gunnars Hanssonar hefur verið opinberuð. Fyrirhugað er að sýna myndina á vormánuðum.
Kitla gamanmyndarinnar Bakk í leikstjórn Gunnars Hanssonar og Davíðs Óskars Ólafssonar hefur verið opinberuð og má skoða hana hér. Áætlað er að frumsýna myndina um næstu páska.
Tökur á bíómyndinni Bakk í leikstjórn Gunnars Hanssonar og Davíðs Óskars Ólafssonar, hefjast í ágústbyrjun og standa fram í september. Myndin segir frá tveimur æskuvinum sem ákveða að bakka hringinn í kringum Ísland til styrktar langveikum börnum.
Árni Filippusson framleiðandi hjá Mystery Productions og tökumaður er fulltrúi Íslands í Producer on the Move þetta árið. Cineuropa ræddi við hann um hvernig hann komst inní bransann og verkefnin framundan.