Sýn hættir framleiðslu innanhúss, leitar til sjálfstæðra framleiðslufyrirtækja

Átta starfsmönnum hefur verið sagt upp hjá Sýn í tengslum við skipulagsbreytingar á innlendri framleiðslu hjá fyrirtækinu.

Sýn rekur Stöð 2 og ýmsar aðrar rásir og efnisveitur. Sagt er frá þessu á vef RÚV og þar segir einnig:

„Við ætlum ekki að vera með innlenda þáttagerð innanhúss lengur,“ segir Kristjana Thors Brynjólfsdóttir, framkvæmdastjóri miðla og efnisveitna. Þess í stað verði leitað til framleiðslufyrirtækja sem sjá um að búa til innlent efni.

Kristjana segir ekki stefnt á að minnka innlenda framleiðslu að neinu leyti. „Við erum ekki að breyta vinsælu þáttunum okkar, heldur bara hvernig við erum að framleiða,“ segir hún.

Ákvörðunin tekur gildi 1. ágúst og verður því hægt að ljúka við þá þætti sem þegar voru komnir í framleiðslu innanhúss. „Það er enginn að labba út og framleiðsla heldur áfram,“ segir Kristjana sem tekur fram að ákvörðunin muni ekki hafa bein áhrif á áhorfendur.

HEIMILDRÚV
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR