Alessandra Celesia heiðursgestur Skjaldborgar 2025

Heiðursgestur Skjaldborgar 2025 er ítalska leikstýran Alessandra Celesia.

Alessandra býr jöfnum höndum í París og Belfast og hefur stundað heimildamyndagerð á Norður-Írlandi sem og í heimalandinu Ítalíu. Hún er menntuð í bókmenntum og leiklist og hóf feril sinn í sviðslistum áður en hún sneri sér að heimildamyndagerð.

Alessandra mun halda fyrirlestur laugardaginn 7. júní að lokinni sýningu á verðlaunamynd sinni The Flats (Íbúðirnar). Myndin hefur ferðast hátíðahringinn frá því snemma árs 2024 og vann meðal annars aðalverðlaunin á CPH:DOX 2024 og IFTA, írsku kvikmyndaakademíuverðlaunin, fyrir heimildamynd ársins.

VERK EFTIR HEIÐURSGEST

THE FLATS
Leikstjórn: Alessandra Celesia
Framleiðsla: Jean-Laurent Csinidis, Geneviève De Bauw, Jeremiah Cullinane & John McIlduff

The Flats (Íbúðirnar) segir af Belfast íbúanum Joe þar sem hann endurleikur æskuminningar sínar frá tímum The Troubles (Vandræðin) en það er mjög myrkt tímabil í átökunum á Norður-Írlandi 1968-1998. Þar létust ótal Írar, einkum kaþólikkar, en Joe er kaþólskur. Joe til halds og trausts í að endurgera senur úr lífi sínu til að heila áföll sín úr æsku er sterkt persónugallerí af vinum og nágrönnum, en sálfræðingur Joe á einnig mikinn þátt í uppgjöri hans við fortíðina. Þau Jolene, Sean, Angie og fleiri fara einnig inn í gamlar minningar og saman draga þau upp raunsæja mynd fyrir áhorfandann af atburðum sem hafa markað allt þeirra líf, hverfið þeirra og undirokaða stöðu þeirra í samfélagi sem ekki hefur farið réttlátum höndum um kaþólska minnihlutann.

THE BOOKSELLER OF BELFAST
Leikstjórn: Alessandra Celesia
Framleiðsla: John McIlduff & Michel David

The Bookseller of Belfast (2012) segir af John Clancy, fyrrum bóksala á eftirlaunum, og samferðamönum hans í Belfast sem öll eiga sér vonir og þrár út fyrir stöðu og stétt. Jolene, sem er ein afburðarpersónum úr The Flats, kemur einnig fyrir í þessari mynd. Myndin er ljóðræn og gamansöm og fylgir John feta nýja slóð í Belfast með bækur undir hendinni, gulnaðar af tíma og sígarettureyk.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR