Þessar myndir verða frumsýndar á Skjaldborg 2025

Myndaval Skjaldborgarhátíðarinnar 2025 hefur verið opinberað. Alls verða 18 myndir frumsýndar, þar af 5 í fullri lengd og 13 styttri heimildamyndir. Auk þess verða fimm verk í vinnslu kynnt. Hátíðin verður haldin um hvítasunnuhelgina á Patreksfirði dagana 6.-9. júní.

FRUMSÝNINGAR: VERK Í FULLRI LENGD

BÓNDINN OG VERKSMIÐJAN
Leikstjórn: Barði Guðmundsson & Hrafnhildur Gunnarsdóttir
Framleiðsla: Hrafnhildur Gunnarsdóttir / Krumma Films

Hross á bæ í Hvalfirði veikjast eitt af öðru af völdum meintrar flúormengunar frá álverksmiðju í næsta nágrenni. Bóndinn á bænum mætir skilnings- og afskiptaleysi stjórnvalda og er sjálfur sagður bera ábyrgðina. Bóndinn leitar allra leiða til að komast að hinu sanna í málinu en á við ofurefli að etja.

FRÁ ÓMI TIL HLJÓMS
Leikstjórn: Ásdís Thoroddsen
Framleiðsla: Ásdís Thoroddsen / Gjóla

Sveinn Þórarinsson amtskrifari (1821-1868) hélt dagbók frá unglingsaldri þar til hann lést. Dagbókarfærslur hans, sem lúta að tónlist eru leiðarstef í kvikmyndinni „Frá ómi til hljóms,“ sem fjallar um breytinguna sem varð í íslensku tónlistarlífi á 19. öld þegar ný hljóðfæri, nýjar tóntegundir og sönglög bárust frá meginlandinu.

HASHTAG # T(O)ÚR
Leikstjórn: Margrét Seema Takyar
Framleiðsla: Margrét Seema Takyar / Hark

Halla Ólafsdóttir og Amanda Apetrea eru verðlauna danshöfundar sem vinna oft sem tvíeykið Beauty & Beast. Í verkum sínum ögra þær bæði sýnilegum og ósýnilegum reglum feðraveldisins. Þegar #metoo brýst út á sama tíma og stóri túrinn þeirra virðist lífið loks vera endurspegla listina. Úti er ævintýri – eða?

PARADÍS AMATÖRSINS
Leikstjórn: Janus Bragi Jakobsson
Framleiðsla: Tinna Ottesen / Stefnuljós

Á Íslandi, í Paradís Amatörsins, voru alltaf til menn sem tóku upp viðburði í fjölskyldum eða bæjarfélagi – áður en nokkur vissi almennilega til hvers. Í dag eru það ekki lengur viðburðir sem eru skrásettir, heldur sjálfsmyndir sem eru skapaðar. Og allt þetta efni endar á YouTube. Myndin byggir á efni frá mönnum úr fjórum kynslóðum sem allir hafa deilt lífi sínu á YouTube. Fyrrverandi forstjórinn Guðfinnur hefur myndað fjölskyldu sína í áratugi. Leigubílstjórinn Kári heldur í óperudrauma sína með aríusöng í íbúðinni í Hafnarfirði. Einstæðingurinn Sævar opinberar sig í leit að alvöru tengingu við aðra. Og síðast en ekki síst áhrifavaldurinn Karl Emil sem týnist í leit að sjálfum sér. Leikstjórinn Janus Bragi fylgir þessum fjórum mönnum eftir og rýnir í hvernig þeir, með deilingu eigin myndefnis, spegla það sem skiptir mestu í lífinu.

STRENGUR
Leikstjórn: Gagga Jónsdóttir
Framleiðsla: Gaukur Úlfarsson / Sagafilm

Á bökkum Laxár í Aðaldal eru fjórar ungar konur að taka sín fyrstu skref sem leiðsögukonur. Áin tengist fjölskyldu þeirra órjúfanlegum böndum og stelpurnar eru 7 kynslóðin til að standa vaktina við ána Þær eiga einstakt samband við hvor aðra, feður sína og náttúruna í kringum sig. Eftir því sem líður á sumarið eflist sjálfstraustið og færnin eykst. En á sama tíma er viðkvæmri náttúrunni storkað og um leið framtíð þeirra og fjölskuldufyrirtækisins.

FRUMSÝNINGAR: HEIMILDASTUTTMYNDIR

CARINA
Leikstjórn: Álfgerður Malmquist Baldursdóttir
Framleiðsla: Álfgerður Malmquist Baldursdóttir

Bílferð í gegnum landslag íslenskrar barnæsku, mótaða af ástríkri fjölskyldu, einveru og fallegri náttúru. Carina tekur áhorfandann með í ferðalag sjálfsskoðunar, þroska og vináttu.

HUGLEIÐINGAR MÁVS
Leikstjórn: Arnar Gústafsson
Framleiðsla: Arnar Gústafsson

„Ef þú spyrð mig, þá er eiginlega ekki hægt að segja að maður elski fugla en hati máva.“ Hugleiðingar Mávs er essayísk stuttmynd um ást, landamæri og fordóma sögð frá sjónarhorni mávs.

MUSTERI MINNINGANNA / MEMORY MAN
Leikstjórn: Erlendur Sveinsson
Framleiðsla: Kári Úlfsson / Sensor TV

Jón í Myndbandavinnslunni sérhæfir sig í að færa gamlar upptökur í stafrænt form og þar með halda lífi í minningum Íslendinga sem annars gætu glatast. Skyggnst er inn í persónulegar sögur Jóns og viðskiptavina hans, og þróunina og tæknina sem liggur að baki varðveislu minninga í hinum ýmsu formum hreyfimyndarinnar.

OLENA
Leikstjórn: Álfheiður Ricther & Egill Spanó
Framleiðsla: Álfheiður Ricther & Egill Spanó / LHÍ

Olena var starfandi leikkona í Kyiv en eftir að hafa þurft að flýja Úkraínu vegna innrás Rússa býr hún við allt annan veruleika en áður. Hún fær einn dag til að heimsækja leikhúsið á ný og segja sína sögu.

ÓSIGRAÐUR
Leikstjórn: Jóna Gréta Hilmarsdóttir
Framleiðsla: Jóna Gréta Hilmarsdóttir

Myndin fjallar um Hilmar Pál Jóhannesson, föður leikstjórans, og áralanga baráttu hans við Reykjavíkurborg um lóð í Gufunesi. Skipulagsbreytingar eyðilögðu drauma hans og málið hefur tekið yfir líf hans. Í gegnum tengsl hans við ástvini birtist maður sem glímir við sorg, reiði, einangrun – og sjálfan sig.

PÓLITÍSKUR ÖFGAMAÐUR
Leikstjórn: Harpa Hjartardóttir
Framleiðsla: Harpa Hjartardóttir / FAMU International

Harpa fer aftur heim til Íslands til að heimsækja rapparann ​​Erp Eyvindarson. Þau fara saman í kvikmyndatöku, drekka bjór, reykja vindla og ræða pólitík. Einnig velta þau fyrir sér viðtali sem Erpur tók við Pál Arason fyrir 25 árum og ákveða að heimsækja það sem eftir er af honum.

YFIRNÁTTÚRA ÍSLANDS: SÆLUHÚSIÐ VIÐ JÖKULSÁ Á FJÖLLUM
Leikstjórn: Gunnjón Gestsson
Framleiðsla: Gunnjón Gestsson

Mörg hús á íslandi eru alræmd fyrir reimleika. En eitt slíkt draugahús er dularfyllra en öll önnur. Afskekkt hús sem stendur í miðri auðn víðsfjarri mannabyggðum: Sæluhúsið við Jökulsá á Fjöllum. En draugurinn sem þar dvelur birtist yfirleitt í formi kafloðinnar ófreskju.

ÞRJÁR KYNSLÓÐIR Í RISI
Leikstjórn: Alexandra Jónsdóttir
Framleiðsla: Alexandra Jónsdóttir

Ksenia, móðir Alexöndru, flýgur til Íslands frá Rússlandi yfir langa helgi. Tilgangur ferðarinnar er að mynda nánari tengsl við barnabarnið sitt – og jafnvel við dóttur sína líka. Myndin fjallar um tengslamyndun milli móður og barns, ömmu og barnabarns, og þær samræður og athafnir sem eiga sér stað innan þvermenningarlegrar fjölskyldu.

VERK Í VINNSLU

GAGG!
Leikstjórn: Jón Bjarki Magnússon & Hlín Ólafsdóttir
Framleiðsla: Jón Bjarki Magnússon & Hlín Ólafsdóttir

Eldri Strandamaður gaggar á heimskautatófuna í leit að tengingu í hnignandi heimi—þar til hann eltir spóann með straumum mannlegrar samkenndar til Afríkustranda. Gagg! minnir á hvernig tengslin sem flæða manna í millum standast álag tímans—líkt og síkvikir hafstraumar sem hafa alltaf dregið ólíkar strendur sundur og saman.

HALLGRÍMUR
Leikstjórn: Ísak Hinriksson
Framleiðsla: Ísak Hinriksson

Heimildamynd um Hallgrím Helgason.

HELGI VERÐUR STÓR
Leikstjórn: Helgi Hrafn Guðmundsson, Björn Leó Brynjarsson & Grímur Jón Sigurðsson
Framleiðsla: Arnar Benjamín Kristjánsson / Sagafilm

Helgi verður stór er heimildarmynd um Helga Óskarsson, 56 ára gamlan leigubílstjóra, sem ætlar að taka þátt í rallímóti í síðasta sinn. Um leið rekur hann ævisögu sína og rifjar upp lengingaraðgerðir sem hann gekkst undir í Sovétríkjunum á árunum 1982-1989 og þjóðin fylgdist með.

MENNINGARSMYGLARINN
Leikstjórn: Jón Bjarki Magnússon & Haukur Már Helgason
Framleiðsla: Jón Bjarki Magnússon & Haukur Már Helgason

Menningarsmyglarinn og skáldið Ásgeir H Ingólfsson lést fyrr á árinu eftir snarpa baráttu við krabbamein. Sumarið 2017 fylgdu vinir honum eftir með myndavél þegar hann gerðist „gastarbeiter“ í eigin landi og tók við næturvörslu í jarðböðunum á Mývatni. Myndefni þar sem hann smyglar ljóðum á milli skúringa ákallar nú kvikmyndagerðarmennina.

PÓSTKORT
Leikstjórn: Freyja Kristinsdóttir
Framleiðsla: Freyja Kristinsdóttir

Kristinn gengur Jakobsveginn í fyrsta sinn og ritar 46 póstkort til eiginkonu sinnar – eitt póstkort fyrir hvert ár þeirra saman. Minningarnar eru honum efst í huga, þar sem eiginkonan hefur nýverið greinst með Alzheimer. Átta árum síðar heldur Kristinn enn á ný í ferð á Jakobsveginn og skrifar síðasta póstkortið.

HEIMILDSkjaldborg
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR