Hlynur Pálmason kynnir væntanlegt kvikmyndaverk á Investors Circle í Cannes

Hlyni Pálmasyni hefur verið boðið að kynna næsta kvikmyndaverkefni sitt, Á landi og sjó, á Investors Circle fjármögnunarmessunni á kvikmyndahátíðinni í Cannes.

Vettvangurinn veitir einkafjárfestum tækifæri til að kynna sér metnaðarfull kvikmyndaverk á fyrstu stigum fjármögnunar. Þetta er í þriðja sinn sem viðburðurinn er haldinn.

Hlynur er á meðal tíu leikstjóra frá átta löndum sem kynna verkefnin sín. Meðal annarra leikstjóra má nefna Sebastián Lelio (A Fantastic Woman), Lukas Dhont (Girl, Close), Eliza Hittman (Never Rarely Sometimes Always), og Jasmila Žbanić (Quo Vadis, Aida?).

Nýjasta kvikmynd Hlyns, Ástin sem eftir er, verður sýnd í aðaldagskrá kvikmyndahátíðarinnar í Cannes í ár. Verðlaunamynd Hlyns, Volaða land, var einnig heimsfrumsýnd í aðaldagskrá hátíðarinnar 2022.

Í kynningu Investors Circle segir að framleiðslukostnaður verkefnanna spanni frá 3 milljónum til yfir 9 milljónir evra, sem endurspegli bæði listrænan metnað þeirra og möguleika á alþjóðlegum markaði.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR