Napóleonsskjölin er áfram með mesta aðsókn þeirra fjögurra íslensku kvikmynda sem voru í sýningum í vikunni sem leið. 227 gestir sáu myndina í vikunni, en alls hafa 29,075 séð hana eftir 15. sýningarhelgi.
Á ferð með mömmu sáu 54 í vikunni en alls nemur heildarfjöldi gesta 12,091 eftir 12. sýningarhelgi.
Volaða land sáu 35 í vikunni, en alls nemur fjöldi gesta 4,241 eftir tíundu sýningarhelgi.
Villibráð sáu 18 í vikunni, en alls nemur heildarfjöldi gesta 56,236 eftir 19. sýningarhelgi.
Aðsókn á íslenskar myndir 8.-14. maí 2023
VIKUR | MYND | AÐSÓKN (SÍÐAST) | ALLS (SÍÐAST) |
15 | Napóleonsskjölin | 227 (212) | 29,075 (28,848) |
12 | Á ferð með mömmu | 54 (155) | 12,091 (12,037) |
10 | Volaða land | 35 (92) | 4,241 (4,206) |
19 | Villibráð | 18 (57) | 56,236 (56,218) |
(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)