Opnað fyrir innsendingar Edduverðlauna, skilafrestur til miðnættis 25. janúar

Opnað hefur verið fyrir innsendingar á kvikmynda- og sjónvarpsverkum fyrir Edduna 2022. Gjaldgeng eru verk frumsýnd opinberlega á tímabilinu 1. janúar til 31. desember 2021.

Innsendingaferlið er að fullu rafrænt á innsendingarvef Eddunnar. Framleiðslufyrirtæki fylla þar út upplýsingar um verk, greiða innsendingargjald og hlaða verkum upp á slóð ÍKSA: http://innsending.eddan.is/

Frestur til að senda inn verk rennur út á miðnætti þriðjudaginn 25. janúar 2022 og strax í kjölfarið hefja valnefndir Eddunnar störf.

Tilnefningar verða tilkynntar í byrjun mars og Edduverðlaunin verða veitt 20. mars 2022.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR