Teiknimyndin JÁ-FÓLKIÐ eftir Gísla Darra Halldórsson á stuttlista til Óskarsverðlauna

Teiknimyndin Já-fólkið eftir Gísla Darra Halldórsson er á stuttlista Bandarísku kvikmyndaakademíunnar yfir stuttar teiknimyndir sem til greina koma vegna Óskarsverðlauna.

Myndin hlaut verðlaun yngstu áhorfendanna (Children’s Choice Award) á stutt- og heimildamyndahátíðinni Nordisk Panorama síðastliðið haust.

Vísir segir frá:

Já-fólkið á möguleika á að hljóta tilnefningu sem besta stutta teiknimyndin eða „Animated Short Film.“ Tilnefningarnar verða tilkynntar opinberlega þann 15. mars næstkomandi. Myndin var sýnd hér á landi á RIFF Heima kvikmyndahátíðinni á síðasta ári.

Gísli Darri Halldórsson leikstjóri myndarinnar skrifaði einnig handritið og sá um klippingu. Myndin er á íslensku en með enskum texta. Inn á myndina tala meðal annars Helga Braga Jónsdóttir, Ilmur Kristjánsdóttir, Jón Gnarr, Kristján Franklín Magnús, Sigurður Sigurjónsson og Þorvaldur Davíð Kristjánsson.

„Já-fólkið er teiknimynd sem fjallar um íbúa í ónefndri blokk sem vakna einn vetrarmorgun og rútína hversdagsleikans tekur við – hvort sem það er vinnan, skólinn eða heimilislífið. Við fylgjum fólkinu í einn sólahring en þegar líða tekur á daginn fer lífsmunstur hvers og eins að kristalla persónurnar (dugnaður, leti, fíkn og ástríða). Um kvöldið eru allir komnir heim og um blokkina ómar ýmist ástaratlot eða æpandi þögn sambandsleysis. Að lokum þarf hver og einn að horfast í augu við gjörðir dagsins. Þetta er gamansöm, hálf-þögul teiknimynd um fjötra vanans,“ segir um myndina á vef Kvikmyndamiðstöðvar.

Teiknimyndin er átta mínútur og 35 sekúndur og var frumsýnd á Minimalen Short Film Festival þann 24. janúar á síðasta ári. Framleiðendur eru Arnar Gunnarsson og Gísli Darri fyrir framleiðslufyrirtækið Caoz.

Hér að neðan má sjá Gísla Darra ræða myndina og í lok klippunar birtist stuttur bútur úr henni.

HEIMILDVísir
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR