[Stikla] Heimildamyndin HÆKKUM RÁNA komin í sýningar

Heimildamyndin Hækkum rána eftir Guðjón Ragnarsson er komin í Sjónvarp Símans Premium en verður einnig sýnd í opinni dagskrá fimmtudaginn 11. febrúar kl. 20:35 í Sjónvarpi Símans.

Margrét Jónasdóttir framleiðir fyrir Sagafilm.

Árið 2015 var körfuboltaflokkur fyrir stelpur stofnaður á Íslandi. Þær voru þjálfaðar eins og leiðtogar utan vallar og afrekskonur innan vallar. Þær settu sér snemma það markmið að keppa ávallt við þá bestu og voru sigursælar í drengja- og stúlknamótum. Þetta er saga 8-13 ára stúlkna sem vildu breyta viðmiðum í kvennakörfu á Íslandi. Með miklum fórnarkostnaði tókust þær á við það mótlæti sem því fylgdi.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR